Réttur - 01.11.1964, Side 60
RITSJÁ
WORLD MARXIST REVIEW.
7. hejti 1943. Prag.
I þessu 7. hefti tímaritsins eru
eftirfarandi greinar:
Fyrsta greinin er eftir aðalritstjór-
ann, A. Rumjanzew og heitir: „Um
höfuðandstœðurnar á yfirstandandi
tímabili." Skiptist greinin í tvo höfuð-
kafla: „Yfirstandandi tímabil og
höfuðmótsetningar þess“ og „Barátta
tveggja heimskerfa og þróunin í
heiminum". Er þar m. a. hörð ádeila
á skoðanir kínversku kommúnist-
anna.
Tim Buck, forseti Kommúnista-
flokks Kanada ritar greinina: „Sjálf-
virknin í framleiðslunni í Kanada og
þjóðfélagslegar afleiðingar hennar."
Er þar sýnt fram á hve illa sjálf-
virknin leikur alþýðu í auðvaldsþjóð-
félagi og að það sé aðeins í þjóð-
féiagi sósíalismans, sem sjálfvirknin
verður öllum til blessunar.
Arnaldo Martinez Verdugo, aðal-
ritari Kommúnistaflokks Mexiko ritar
grein um baráttu alþýðunnar í Mexiko
og hardagaaðferð Kommúnistaflokks-
ins.
Þá kemur grein eftir Frantisek
Stránský um efnahagssamvinnu sósíal-
istísku landanna.
Ernest Burnelle, formaður Komm-
únistaflokks Belgíu, ritar um „endur-
bætur og hyltingu."
Þá koma ýmsar greinar um flokka
kommúnista og aðra verklýðsflokka.
Þar ritar m. a. Grikkinn Dmitn
Lakkas „gegn kenningu og fram-
kvæmd klofningsins“ og rekur þar
klofningu þá, sem orðið hefur í ýms-
um kommúnistaflokkum. Og fleiri
greinar er þar að finna um baráttuna
í alþjóðahreyfingu kommúnista.
Fritjoj Lager, einn af forustumönn-
um sænska Kommúnistaflokksins,
ritar greinina: „Baráttan um lýðræð-
ið í verksmiðjum Svíþjóðar." Er þar
að finna góða skilgreiningu á afstöðu
einkaauðvalds í Svíþjóð. Þáttur ríkis-
ins, bæjanna og samvinnuhreyfingar-
innar í framleiðslunni er aðeins 10%,
en einkarekstur, stór og smár 90%.
Við rannsókn kemur í ljós að 50
stóriðjufyrirtæki höfðu 1960 47% aí
iðnaðarverkamönnum landsins i þjón-
ustu sinni og framleiddu helming alls
framleiðsluverðmætis. Þrír stórbank-
ar, stærstu tryggingafélögin, stærstu
iðnaðar- og verzlunar-hlutafélögin og
15 fjármálajöfrar eru nátengdir og
skapa kjarnann í fjármálaauðvaldi
Svíjijóðar. Og innsti kjarni þessa
valds er í liöndum fimm fjölskyldna:
Wallenberg, Wehtje, Johnsson, Bonni-
er og Broström. Nána skilgreiningu á
þessu er að finna í bók C. H. Her-
mannsson: „Monopol och storfinans“,
Stokkhólmi 1962. Sænsku Kommún-
istarnir berjast fyrir efnahagslegu
lýðræði í verksmiðjunuin, þ. e. valdi
og réttindum verkalýðsins viðvíkjandi
rekstri atvinnufyrirtækjanna. Enn-
fremur berst flokkurinn fyrir þjóð-
nýtingu vátryggingarfélagunna, þjóð-
nýtingu olíuinnflutningsins, ríkiseign
á námiim og skógi, mótspyrnu gegn
jarðbraskinu, aðstoð við íbúðabygg-
ingar og fyrir því að hin miklu leigu-