Réttur - 01.11.1964, Side 62
254
R É T T U R
lendukúgunarinnar og þróunina eftir
að sjálfstæðið fékkst. Þrem árum síð-
ar var Verkamanna- og bændaflokkur
Nigeriu stofnaður, er það sýndi sig
hvernig hagsmunir alþýðu rákust á
við hagsmuni aðalsmanna, ættarhöfð-
ingja og auðmanna. Flokkurinn að-
hyllist sósíalismann. Hann beitir sér
fyrir því að koma á lýðræðislegu ríki
í Nigeriu, sem snúist gegn nýju ný-
lendustefnunni og aðalsmönnunum.
Reynir flokkurinn að sameina öll rót-
tæk öfl til þessarar baráttu.
J. Tonner ritar grein út af árásum
Bandaríkjahers á Norður-Vietnam. Þá
eru og birt eftirmæli eftir Togliatti.
Þá koma ýtarlegar frásagnir af lífi
og starfi ýmissa flokka verkalýðsins:
Avarp frá Kommúnistaflokki Brasilíu,
— grein frá kommúnistum Argentínu
um hættuna á gagnbyltingartilraun
afturhaldsins þar í landi, — frásögn
af blaðakosti alþýðu í Tékkóslovakíu.
Þá segir Joao Velez, portúgalskur
kommúnisti, frá hetjulegri baráttu
kommúnistaflokks Portugals á sviði
hinnar leynilegu blaðaútgáfu. Grein
lians hefst á tilvitnun í orð José Mor-
eira (Glasers), sem var af hálfu flokks
ins ábyrgur fyrir útbreiðslu flokks-
hlaðanna og var skotinn af lögregl-
unni, af því hann neitaði að svara
spurningum hennar.
Tilvitnunin hljóðaði svo: „Leyni-
blöðin eru hjarta alþýðubaráttunnar.
Og án hjarta getur líkami ekki ]ifað.“
I 33 ár hefur aðalmálgagn flokksins
„Avante" komið út á laun, reglulega,
og tvöfaldað eintakafjöldann á síð-
ustu tveim árum. I sambandi við
undirbúning undir 1. maí í Lissabon
1962 og 1963 voru útbreidd flugblöð
og ávörp flokksins í meir en milljónar
upplagi. Fórnir flokksins í þessari
haráttu hafa verið ægilegar:
Bento Goncalves, ritari flokksins,
var myrtur í Tarrafal-fangabúðunum;
José Gregorias var meðlimur fram-
kvæmdanefndar flokksins, prentaði
lengi vel „Avante" og dó 1961 eftir
að hafa unnið sleitulaust í 20 ár við
hin erfiðustu skilyrði ólöglegrar bar-
áttu; José Moreira var starfsmaður
flokksins, er var píndur til bana af
leynilögreglunni, sem var að reyna
að pynta hann til að segja frá því
hvar leyni-prentsmiðjan væri; Maria
Machado, starfskona flokksins, var
fjórum sinnum handtekin og í síðasta
sinn eftir fjögra ára starf við leyni-
blöðin og að síðustu sagði hún, er
hún horfðist í augu við dauðann:
„Mannkynið mun samt sigra. Hvað
gerir það þá, þó ég lifi ekki þann
sigur.“ — Kommúnistaflokkur Portu-
gal samanstendur af slíku alþýðu-
fólki, slíkum hetjum. Þó sumir séu
kvaldir í fangabúðum og drepnir, þá
halda hinir áfram baráttunni og munu
sigra.
Þá er grein um starf Kommúnista-
flokks Indlands eftir Bhagat Rao. Er
þar einnig komið inn á þá klofningu,
sem átt hefur sér stað í flokknum.
Þá er skýrt frá þeim ummælum,
sem fram fara í löndum Araba um
möguleikann á þróun til sósíalisma
þar. Setja marxistar Arabalandanna
frain skoðanir sínar á þeim flóknu
og merkilegu málum.
]. Tliomas ræðir „Goldwater-hætt-
una“ í Bandaríkjunum og nauðsyn-
ina á samfylkingu til að sigrast á
þessari fasistisku hættu.
Þá er grein eftir H. Fagan um þing-
kosningarnar í Englandi.
Ymsar greinar og tilskrif er að
finna undir fyrirsögninni: „Bréf og
athugasemdir," um þýzka alþýðulýð-
veldið, um bæjarstjórnarmál í Vínar-