Réttur - 01.01.1965, Qupperneq 47
R É T T U R
47
í órofa tengslum viS daglegt starf og skírS í eldi baráttunnar, auk
þess, sem þau verSa bezt túlkuS og skilin í gegnum starfiS.
Fræðslukerfi sósíaliskra flokka
Sósíaliskir flokkar telja fræSslustarfiS eitt af mikilvægati verk-
efnum sínum, og hafa alla tíS gert. Hinir stóru og fjölmennu flokk-
ar erlendis hafa víStækt og marggreint fræSslukerfi, allt frá stutt-
um námskeiSum upp í flokksháskóla. ÞaS má heita, aS hver ein-
asti flokksfélagi sé á hverju ári í einhverskonar námi á vegum
flokkanna. Smáhópar eru skipulagSir, sem verja kvöldi og kvöldi
-— einu sinni í viku eSa á tveggja vikna fresti — í umræSur um
dagleg verkefni eSa dægurmál. Fer þetta fram á vegum grunnein-
inga flokkanna og er þátttakan rnjög alnienn. Hverju efni er ætl-
aSur stuttur tími, ftá 20 mínútum i klukkustund. Þannig eru t. d.
ræddar ályktanir flokksþinga, kjaramál og önnur verkalýSsmál,
’ýSræSiS, alþjóSlegir viSburSir, menningarmál o. fl. Oft er óflokks-
hundnum boSiS á þessi samtalskvöld.
Þá eru þaS leshringirnir. Þeir starfa á fræSilegri grundvelli. Þátt-
lakendur fá í hendur verkefni, sem þeir verSa aS kynna sér meS
lestri hóka og tímaritagreina, og semja stutt erindi um efniS. A
eftir eru umræSur. LeiSbeinandi flytur bæSi inngangsorS og dreg-
ur fram þau atriSi í umræSunum, er hann telur þáttakendum óljós.
Næst taka viS námskeiS í fræSigreinum marxismans, og öSr-
um hagnýtum efnum. AS lokum er flokksháskólinn.
Á þennan hátt þjálfa flokkarnir félaga sína og kenna þeim aS
heita vopnum marxismans í daglegu starfi.
Fræðslumól Sósialistaflokksins
Okkar flokkur er fámennur ínema þá í hlutfalli viS íbúatölu)
°g ekki fjársterkur. ViS getum því ekki kostaS fullkomiS og víS-
tækt fræSslukerfi, en sitt hvaS getum viS þó gert í þessum mál-
um, og höfum reyndar gert.
A flestum þingum flokksins hafa fræSslumálin veriS rædd og
gerSar ályktanir. Ekki höfum viS komiS þeim öllum í framkvæmd.
A hverjum vetri hefur þó veriS nokkur leshringastarfsemi — eink-
um meS ungu fólki — og haldnir fyrirlestrar. Mest hefur þetta ver-
’ð bundið við Reykjavík og Akureyri. En almennari fræðslustarf-
semi meðal félaga hefur verið ábótavant. Þar eru að vísu ýmsir
mfiðleikar á vegna þess langa vinnudags, sem trölIriSur nú öllum