Réttur - 01.10.1930, Síða 2
3Í4 STRAUMHVÖRF [Rjettuv
irráðasvæðum breska auðvaldsins aukast erfiðleikar
þess. Nýlenduuppreisnin magnast um allan heim og
skerpist auk þess sakir kreppunnar í auðvaldsheimin-
um.
Verkalýðshreyfingin vex einnig óðfluga. Áhrif
kommúnista eru orðin auðvaldinu svo hættuleg, að það
grípur til þess úrræðis, að banna starfsemi þeirra með
lögum. Á Spáni, ítalíu, Jugo-Slavíu, Bulgaríu, Rúmeníu,
Ungverjalandi, Póllandi, Lithauen, Lettlandi, Eistlandi
og Finnlandi eru kommúnistaflokkar bannaðir og
kommúnistar ofsóttir og drepnir þúsundum saman. En
áhrif þeirra margfaldast engu að síður. Verkföllin á
Spáni, allsherjarverkfall og götubardagar í Sevilla,
uppþotin í Milano, kröfuganga 200,000 verkamanna og
götuvígi þeirra á Budapest-strætum 1. september,
verkföll og óeirðir í Póllandi, pólitísk allsherjarverkföll
í Frakklandi, vefnaðarverkfallið í Bretlandi og nú síð-
ast hinn mikli sigur kommúnista við þýsku kosningarn-
ar, þar sem þeir bæta við sig IV3 miljón kjósenda og
verða stærsti flokkurinn í helstu iðnaðarborgunum, svo
sem Berlin, — alt þetta sýnir hvernig kommúnisminn,
byltingarhreyfing verkalýðsins, er að færast í aukana
og magnast að sama skapi sem auðvaldinu hnignar.
Það sem ennþá er Þrándur í Götu þess, að verkalýð-
urinn gæti sem ein samfeld stjett ráðið niðurlögum
heimsauðvaldsins, eru sosialdemokratar og alþjóðasam-
band þeirra, II. Internationale. Þeir hafa víðast hvar í
auðvaldshluta Evrópu meirihluta verkalýðsins með
sjer, þó þeir smámsaman sjeu að tapa honum, þar sem
þeir best sýna sig, svo sem í Þýskalandi.
Sosialdemokratar standa gegn frelsisbaráttu ný-
lenduþjóðanna og aðalflokkur þeirra, hið breska La-
bour Party, rekur nú erindi breska auðvaldsins með
því að reyna að kæfa í blóði frelsisbaráttu indversku
alþýðunnar. Sosialdemokratar gera alt sem þeir geta
til að draga úr stjettabaráttu verkalýðsins, þeir boða