Réttur - 01.10.1930, Síða 5
Rjettur]
STRAUMHVÖItF
317
ungum auðvaldsmarkaðsins og ofurefli erlendra
hringa.
Innflutningurinn er um 60 miljónir kr. árlega. Mik-
ill hluti þessarar upphæðar er blóðskattur til erlendu
okurhringanna, er selja innfluttu vörurnar gegnum
einkaumboðsmenn sína og aðra smærri fulltrúa auð-
valdsins.
Bresku olíuhringarnir, Shell og Anglo-Persian, —
þýski áburðarefnahringurinn, I. G. F., — bresk-amer-
íski tóbakshringurinn, British American Tobacco Co.,
— spönsku áfengisverslanirnar, — þýsku og spönsku
saltsamlögin, — danskir og aðrir sementshringar, —
ensk og pólsk kolasamlög, — kanadiskir hveitihring-
ar, — sykur- og kaffihringar, — bílahringarnir Ford
og General Motors, — rafmagnshringarnir A. E. G. og
Siemens & Schuckert, — skipahringarnir D. F. D. S.
og Bergenske, — allir skattleggja þessir hringar og
ótal fleiri íslenska alþýðu um fjárupphæð, sem nemur
frá 25%—50% af innflutningi landsins árlega. Til inn-
heimtunnar á okurskatti þessum, nota þeir mestmegnis
innlenda leppa, einkaumboðsmenn eða jafnvel ríkis-
auðvaldið sjálft (áburð, áfengi, útvarpstæki o. f 1.).
útflutningur landsins er gersamlega í höndum ör-
fárra innlendra og erlendra hringa, sem eru svo sam-
tvinnaðir, að auðsjeð er að hinir innlendu hringar eru
aðeins angar hinna útlendu.
Fiskiútflutningurinn, % hlutar alls útflutningsins,
er nær einvörðungu i höndum fjögra hringa, Kveldúlfs,
sem hefur 25% af útflutningi Islands, H.F. Alliance,
Copland & Co. og fiskisamlagsins frá 1928. Eru þessir
hringar samtvinnaðir ensku, spönsku og ítölsku auð-
magni. Frystfiskútflutningurinn er í höndum sænska-
íslenska frystihússins, sem sænski hringurinn, Sveriges
Forenede Konservfabrikker og Kveldúlfur standa bak
við. Og geigvænlegt enskt-amerískt auðfjelag, með 20
miljón króna auðmagn, hefur þegar trygt sjer einok-