Réttur - 01.10.1930, Síða 11
Rjeítur]
STRAUMHVöRF
323
ar á íslandi, — það eru 1000 ára hátíðahöldin með full-
trúum helstu auðvaldsríkja Evrópu. Þar skáru foringj-
ar Alþýðuflokksins sig enganveginn úr. Þvert á móti.
Og' þeir ætluðu meira að segja að hjálpa til þess að
fullkomna undirlægjuhátt íslands við stórveldin, með
því að láta það ganga í Þjóðabandalagið, hernaðar-
bandalag stórveldanna gegn ráðstjórnarríkjunum. En
það mistókst þó í þetta sinn.
Foringjalið Alþýðuflokksins er því orðið nátengt
auðvaldsskipulaginu, á þann hátt að berjast fyrir einu
þróunarstigi auðvaldsins, ríkisauðvaldinu og hringun-
um gegn öðru lægra og úreltara stigi, einkaauðvaldinu.
Sökum sosialdemokratisks skilnings á ríkishugtakinu
og fjárhagslegra tengsla við ríkisauðvaldið og hring-
ana, hafa þeir bundist hinu borgaralega þjóðfjelagi
föstum böndum. Auðvaldsríkið hefur þar með klófest
foringjalið flokksins, náð að smeygja skuldaklafanum
á blað hans og síðan hefur sambandið við hina íhalds-
sömu, dönsku sosialdemokrata fullkomnað það verk að
eyðileggja foringjalið Alþýðuflokksins á sama hátt
og sosialdemokrataflokkarnir erlendis hafa verið eyði-
lagðir og eru nú orðnir hinn helsti þröskuldur á sigur-
braut verklýðssamtakanna.
Inngangur í II. Internationale er táknið um hvert
stefndi, stuðningurinn við Framsóknarstjórnina og
tollhækkunin 1928, hið hreina og ótvíræða stefnuskrár-
brot, þátttakan í útvegsbankanum, fullkomin brott-
reksturssök úr verklýðshreyfingunni.
Fullkomlega sjest afleiðingin áf þessari pólitík á
uppgjöfinni í stjettabaráttunni. Alþýðusambandsstjórn-
in lætur gersamlega ónotað það afl, sem í verldýðssam-
tökunum felst. Samúðarverkföll eru fordæmd, allsherj-
arverkfall ekki einu sinni notað til að hóta með. Verk-
iýðsstarfsemin alveg vanrækt. Brautargengið til kosn-
inga var orðið flokksstjórninni eitt og alt.
Og loks tóku þeir menn, sem áttu að vera foringjar í