Réttur - 01.10.1930, Page 12
324
STRAUMHVÖRF
[Rjettur
stjettabaráttunni, að boða vinrmfrið — fríð atvinnu-
rekenda til að arðræna verkalýðinn.*) Og endurbóta-
tillögur sinar reyndu þeir að verja með því, að þær
stefndu að heill alls þjóðfjelagsins, alls atvinnuvegar-
*) Haraldur Guðmundsson segir í þingræðu einni:
»En hugmynd okkar jafnaðarmanna um vinnufrið er önn-
ur. Hún er sú, að hver aðili, sem að framleiðslunni vinnur,
taki og að rjettri tiltölu þátt í stjórn hennar og njóti þess,
hver afrakstur verður. Með þeim einum hætti er hægt að
tryggja vinnufriðinn. En það eru vinnuveitendurnir, sem
ekkert vilja gera til samkomulags í þá átt, það sýnir best
hverjar viðtökur kröfur sjómanna fengu. Ein af kröfum
þeirra var sú, að til uppbótar á lágu kaupi á ísfiski fengju
hásetar % o/c af »brutto«-afla skipsins, hver í sinn hlut. Það
er vitanlegt, að þetta var það af kröfum sjómanna, sem var
stærsti þyrnirinn í augum útgerðarmanna. Þeir vilja alls
ekki gera sjómennina þátttakendur í rekstri útgerðarinnar.
Þetta er vanhyggja hjá útgerðarmönnum«......... »Þetta er
áreiðanlega besta leiðin til að glæða starfsumhyggju sjó-
manna, einmitt það, að greiða þeim einhvern hluta af kaupi
sínu með hlutdeild í afla. Jeg er ekki í nokkrum minsta vafa
um það, að útgerðarmenn hefðu beinlínis grætt á því í betri
meðferð fiskjarins að greiða sjómönnunum þessar prósentur.
En þetta vilja þeir síst af öllu gera. Þeir virðast hugsa
svona: Útgerðin er okkar einkamál, við hættum fje okkar í
hana og við eigum líka að taka gróðann einir. Á meðan þessi
hugsunarháttur ríkir hjá öðrum aðilanum, er vinnufriður ó-
hugsandi«. (Alþingistíðindi 1929. C., bls. 986—987).
Með öðrum orðurn: Hjer álítur snjallasti málsvari sosial-
demokrata hægt að tryggja vinnufriðinn í auðvaldsskipulag-
inu, ef aðeins verkamenn fá hlutdeild í gróða auðmannanna
eða hlutdeild í afla skipa, og álasar auðmönnum hjer á landi
fyrir, að sjá ekki þetta gróðabragð fyrir þá og stjett þeirra.
Eftir nokkurn tíma munu einmitt auðmennirnir bjóða sjó-
mönnum hiutdeild og berjast fyrir henni, en móti föstum
launum — til þess að velta. þannig yfir á sjómennina byrð-
um kreppnanna, tengja þá fastar við auðvaldsskipulagið og
smita þá með hugsunarhætti smáútgerðarinnar. En verka-
lýðurinn mun berjast gegn þessu.