Réttur - 01.10.1930, Blaðsíða 15
Rjettur]
STRAUMHVÖRF
327
kenningar hennar aðeins lagaðar eftir því, sem sam-
svarað hefur hagsmunum og hugsunarhætti yfirstjett-
anna á hverjum tíma.
Samskonar tilraun gerir heimsauðvaldið nú við jafn-
aðarstefnuna, og því hefur þegar tekist að gera sosial-
demokrata allra landa að verkfærum sínum, til að við-
halda auðvaldsskipulaginu. Hættan, sem yfir vofði, var
því að það takist að eyðileggja sosialismann, voldug-
ustu og víðtækustu undirstjettauppreisn veraldarinnar,
á sama hátt og kristnina.
Öflin, sem afstýra þessari hættu eru kommúnisminn,
hið sterka Alþjóðasamband kommúnista, ráðstjórnar-
ríkin, hin byltingarsinnaða verklýðshreyfing auðvalds-
ríkjanria og uppreisn nýlenduþjóðanna. Og síðast en
ekki síst getuleysi auðvaldsins, þrátt fyrir dygga að-
stoð sosialdemokrata, til að bjóða vinnandi stjettunum
viðunanleg lífskjör innan vjebanda skipulags síns.
Atvinnukreppa auðvaldsins er skollin yfir ísland. At-
vinnuskipulag .auðvaldsins í þessu landi, sem á að lifa
af fiskútflutningi á stopulan auðvaldsmarkað einvörð-
ungu að heita má, — það skipulag mun riða, er hol-
skeflur kreppunnar skella á því. Vinnufriðnum mun
verða slitið, þegar atvinnurekendur reyna að velta af-
leiðingum kreppunnar yfir á verkalýðinn. Stjettabar-
áttan mun komast í algleyming þegar auðvaldsrekstur-
inn hættir að borga sig fyrir eigendurna, og verkalýð-
urinn sættir sig ekki lengur við sífelt að bera byrðar
auðvaldsins. Sosialdemokratar munu þá reyna að
vei-nda auðvaldsþjóðfjelagið frá falli, boða verkalýðn-
um betri tíma, þegar kreppan sje afstaðin, og setja von
sína á endurbætur, sem þá muni koma, þegar auðvald-
ið aftur megni að láta mola hrynja af borðum sínum
til verkalýðsins.
Þá vantar verkalýðinn það forustulið, þau flokks-
samtök, sem geti leitt hann út í vægðarlausa baráttu
við auðvaldið, sem vilji einmitt láta yfirstjettina falla