Réttur - 01.10.1930, Page 17
kjettui']
STRAUMHYÖRF
§29
skapa ráðstjórnarlýðveldi íslands í sambandi við ráð-
stjórnarbandalag annara frjálsra verklýðsþjóða.
Þegar allur heimurinn vígbýst í gríð og ergi til
að ráða með ofbeldi niðurlögum verklýðsríkjanna, þeg-
ar allir þrælar auðs og valda í veröldinni sameinast til
að drekkja í allsherjarblóðbaði hinni fegurstu draum-
sjón mannkynsins, sosialismanum, sem nú er að byrja
að rætast, — þá reynir á alt það besta, sem íslensk al-
þýða á til, að brjóta á bak aftur óvætti afturhaldsins
og skapa sitt eigið þjóðfjelag.
Nú — þegar tími hefndarinnar fyrir allar þrenging-
ar og kúgun undanfarinna alda er upprunninn, þegar
íslenskir verkamenn og fátækir bit^ídur eru að verða
færir um að afnema stjettakúguniha, sem þjakað hef-
ur þá síðustu 1000 ár, — er alt undir því komið að sam-
eina kraftana til lokaáhlaupsins á aðalvígi auðvaldsins,
ríkisvaldið. jj
Vonir brautryðjenda og skáraa ja'fnaðarstefnunnar á
islandi geta nú rætst. öfl byltingarinnar í heiminum
eru orðin svo sterk, að með samvinnu við þau getur ís-
lensk alþýða líka öðlast frelsi. Upplausn og fúi auð-
valdsins er komin á svo hátt stig, að ólíft er orðið al-
þýðu innan byggingar þess, sem getur hrunið saman
yfir höfðum hennar þá og þegar, og þótt verið sje að
reyna að bæta nýjum »máttarstólpum« undir hið fúna
þak, þá fara þeir sömu leiðina líka og bila von bráðar.
Baráttan fyrir framkvæmd sosialismans á íslandi er
að verða baráttan fyrir daglegu brauði og brýnustu
nauðsynjum verkalýðsins, fyrir frelsi hans af klafa er-
lenda auðvaldsins og ríkisvalds þess á íslandi.
Á tímum þessarar baráttu, þegar auðvaldið marg-
faldar ofsóknir sínar, þegar fasisminn reisir höfuð sitt
á íslandi, þegar andstæðingar verklýðssamtakanna
reyna að kljúfa þau og lama, þá þarf kommúnista-
flokkui' Islands að rísa upp sem vopn alþýðunnar í úr-
22