Réttur - 01.10.1930, Side 19
Karl Marx
Marx er fæddur 5. maí 1818 í Trier í Rínarlöndum,
ei’ tilheyrðu Prússum. Faðir hans var málafærslumað-
ur og gyðingur, en snerist til mótmælendatrúar 1824.
Fjölskyldan var vel efnum buin og menntuð, en ekki
byltingasinnuð. Eftir að Marx hafði lokið við mennta-
skólann í Trier tók hann að stunda háskólanám fyrst
í Bonn, síðan í Berlín. Hann lagði stund á lögfræði, en
mest á sögu og heimspeki. Hann lauk náminu 1841 og
lagði þá fram doktorsritgerð um heimspeki Epikurus-
ar. Marx var þá enn í öllum sínum skoðunum Hegel-
sinni og hugsæismaður. í Berlín gekk hann í flokk »rót-
tækra Hegelsinna« -(Bruno Bauer o. f 1.), er reyndu að
dmga ýmsar guðlausar og byltingarsinnaðar ályktan-
ir út úr heimspeki Hegels.
Er Marx hafði lokið háskólanámi sínu, flutti hann
til Bonn til að fá þar stöðu við háskólann. En stjórnin
var afturhaldssöm. Setti hún/ Lúðvík Feuerbach frá
embætti 1832 og neitaði honum a'ftuj; 1836 um inn-
göngu í háskólann. 1841 neitaði hún hinum unga pró-
fessor Bruno Bauer um að fá að halda fyrirlestra við
háskólann í Bonn. Þessi afturhaldsstefna stjórnarinn-
ar olli því, að Marx varð að hætta við háskólabrautina
að fullu. Skoðanir hinna »róttæku Hegelsinna« tóku
um þetta leyti skjótri þróun og breytingum. Eftir 1836
byrjaði Ludvik Feuerbach sérstaklega að gagnrýna
guðfræðina. Tók hann brátt að hallast að efnis-
hýggjunni, og fengu þessar efnishyggjuskoðanir
22"