Réttur - 01.10.1930, Síða 28
340
SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS [Rjettur
samband og engan pólitískan flokk, sem gætir hags-
muna hans. í þessari ritgerð skal stuttlega tekið til
meðferðar hvernig ber að skipuleggja flokk verkalýðs-
ins, svo trygð sje sú forusta, er til sigurs leiðir.
Hlutverk Kommúnistaflokks.
Hvað er kommúnistaflokkur ? Þessari spurningu
svarar Alþjóðasamband kommúnista í hinum frægu
ályktunum frá II. heimsþinginu 1920, þannig:
»Kommúnistaflokkurinn er þroskaðasti, stjettvísasti
og því byltingarsinnaðasti hluti verkalýðsstjettarinnar.
Kommúnistaflokkurinn er úrval bestu, stjettvísustu,
fórnfúsustu og víðsýnustu verkamannanna. Kommún-
istaflokkurinn hefir engra annara hagsmuna að gæta,
en þeirra, sem eru hagsmunir alls verkalýðsins. Komm-
únistaflokkurinn er að því leyti frábrugðinn hinum
vinnandi fjölda, sem heild, að hann hefir útsýni yfir
hina sögulegu leið verkalýðsins, og á öllum bugðum
þessarar leiðar-ígætir hann heildarhagsmuna verka-
lýðsstjettarinnar, en ekki sjerhagsmuna hinna ýmsu
hluta hennar. Kommúnistaflokkurinn er hinn skipu-
lagslegi og pólitíski stjórnvölur, þar sem hinn þrosk-
aðasti hluti verkalýðsins situr við stýrið og beinij1
stefnu öreigafjöldans og allrar alþýðu í rjetta átt.«
Ef hinn þi'oskaðasti hluti verkalýðsins, sá hluti
hans, sem hefir öðlast útsýn yfi'r leiðir stjettabarátt-
unnar, myndar ekki með sjer vel skipulagðan l'lokk,
sem tekur að sjer forustuna í stjettastríðinu, er alveg
óhugsandi að verkalýðnum verði sigurs auðið. Og vönt-
un slíks flokks er einmitt vottur þess, að skilningur-
inn á nauðsynlegustu grundvallarskilyrðum byltingar-
innar, hefir ekki enn þá fest rætur meðal verkalýðsins.
Vöntun kommúnistaflokks var aðalorsökin fyrir ósigri
verkalýðsins í París 1871. Hefði rússneski verkalýður-
inn ekki átt slíkan forustuflokk, sem flokk bolsévfk-