Réttur - 01.10.1930, Qupperneq 32
.‘144
SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS [Rjettur
Skipulag Kommúnistaflokks.
Kommúnistaflokkarnir eru verkalýðsflokkar. Þeir
eru forustusveitir verkalýðsins. Þess vegna þurfa sam-
bönd þeirra við hinn vinnandi fjölda að vera sem best,
rætur þeirra meðal stjettarinnar sem dýpstar og víð-
tækastar. Alstaðar þar, sem verkamenn eru saman-
komnir, þurfa kommúnistaflokkarnir að lifa og starfa.
Hver verksmiðja og hver vinnustaður á sjó og landi
þarf að verða vígi vort. Til þess eru kommúnistaflokk-
ar, að stjórna hinni daglegu baráttu verkalýðsins. Og
hin daglega barátta fer fyrst og fremst fram á vinnu-
stöðvunum. Á vinnustöðvunum verða allar hinar leyndu
hræringar fjöldans að skýru máli stjettarinnar. Þess-
vegna er vettvangur vor þar og hvergi annarstaðar.
Þessvegna er það eitthvert hið fyrsta og sjálfsagð-
asta verkefni hvers kommúnistaflokks, að segja alger-
lega skilið við gamla sósíaldemókratíska flokksskipu-
lagið, með hinum losaralegu fjelögum manna, sem
starfa hingað og þangað, án nokkurs skipulagsbundins
starfs meðal verkalýðsins þar, sem hann lifir og hrær-
ist daglega — á vinnustöðvunum. Kjörorð vort í skipu-
lagsmálunum vejfður að vera: »Alt starf út á vinnu-
stöðvarnar«. Á vinnustöðvunum eiga flokksdeildir vor-
ar að starfa og hvergi annarstaðar.
Á undanförnum árum hefir varla nokkurt innra
flokksmál skipað slíkt öndvegi meðal kommúnista og
skipulagsmálin. Um þau hafa verið haldnar alþjóðleg-
ar ráðstefnur, sem hafa rannsakað viðfangsefnin til
hlítar og samþykt þaulhugsaðar ályktanir, bygðar á
æfagamalli reynslu, sem oft hefir verið dýru verði
keypt. Á II. alþjóðlegu skipulagsmálaráðstefnunni,
sem haldin var í Moskva í Febrúar 1926, voru sam-
þyktar þær ályktanir, sem síðan hafa verið leiðarvísii-
kommúnistaflokkanna í skipulagsmálum.
Meginregla kommúnistaflokkanna er lýðræði, er