Réttur - 01.10.1930, Qupperneq 35
Rjetturj SKIPULAGSMÁl. VERKALÝÐSINS
347
legt að valinn sje fastur dagur til fundarhalda. Annars
heldur sellan fundi hvenær sem þörf gerist og tækifæri
gefst, t. d. í vinnuhljeum eða að vinnu lokinni. En þess
verður jafnan að gæta vandlega, að fara svo varlega,
að atvinnurekendum eða verkstjórum gefist ekki kost-
ur á að reka nokkurn fjelaga úr vinnu fyrir starf hans
í þágu verkalýðsins.
Starf sellanna, er að standa í broddi fylkingar í bar-
áttu verkalýðsins og berjast baráttu flokks síns á
hverjum vinnustað. Helstu verkefni sellanna eru eftir-
farandi:
1. Skipulagsmál.
a) Innheimta flokksgjalda. b) Umsjón með fram-
kvæmd þess sem samþykt hefir verið og að þau verk
sjeu unnin, sem fjelögunum hafa verið falin. c) Eftir-
lit með því að seílufjelagarnir sjeu meðlimir fagfjelag-
anna og annara verkalýðsfjelaga og taki skipulags-
bundinn þátt í flokksstarfinu innan þeirra. d) Halda
skrá yfir þá verkamenn á vinnustaðnum, sem fylgja
oss að málum. e) Vinna nýja meðlimi og veita þeirn
viðtöku. f) Safna áskrifendum að blöðum og tímarit-
um flokksins, selja þau og önnur rit, bækur og bækl-
inga, sem flokkurinn gefur út.
Sellurnar verða að leggja mikla áherslu á að safna
verkamönnum inn í flokkinn. Inntökubeiðnir þeirra
eru bornar upp á fundum sellanna, og eru þeir þá með-
limir, ef þeir fá meirihluta atkvæða. Ef um er að ræða
menn úr öðrum stjettum, pólitíska foringja, eða menn,
sem af einhverjum ástæðum þykir þurfa að gjalda var-
huga við, geta þeir ekki orðið meðlimir, fyr en stjórn
flokksdeildarinnar á hverjum stað, eða miðstjórnin
hefir samþykt þá.
Sellurnar verða að gefa stjórn flokksdeildarinnar á
hverjum stað reglulegar skýrslur.
2. Daglegt starf á vinmistaðiwm.
a) Taka afstöðu til allra kaupgjaldsmála, alls, sem
23'