Réttur - 01.10.1930, Blaðsíða 36
348 SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS [Rjettul'
snertir lengd vinnutímans og alls, sem snertir afstöðu
verkamannanna til framleiðslunnar að öðru leyti.
Beina kröfum verkamannanna inn á rjettar brautir og
taka að sjer íorustuna í baráttunni fyrir framkvæmd
þeirra. b) Eftirlit með ástandinu á vinnustaðnum, frá
heilbrigðislegu sjónarmiði, slysavörnum o. s. frv. og
barátta gegn öllu ólagi í þeim efnum. c) Barátta gegn
afturhaldssömum verkstjórum og meisturum. d) Bar-
átta gegn erindrekum auðvaldsins á vinnustaðnum.
Hvernig sellunni tekst að gegna hinum kommúnist-
isku skyldum sínum, veltur fyrst og fremst á því,
hversu vel er á haldið í þessari daglegu baráttu.
3. Pólitískt starf.
a) Taka afstöðu til allra flokksmála og ræða þau ít-
arlega. b) Framkvæmd allfa þeirra verkefna, sem
flokkurinn leggur fjelögum sínum á herðar. (Barátta
fyrir vissum málefnum, útbreiðslustarfsemi, o. s. frv.)
c) Vinna að samfylkingu allra verkamanna á vinnu-
staðnum í stjettabaráttunni, án tillits til pólitískra
skoðana. d) Barátta fyrir sameiningu allra verka-
manna í verkalýðsfjelögum og sameiningu þeirra í eitt
samband, hjer á landi og um allan heim, á grundvelli
stjettabaráttunnar, án tillits til mismunandi skoðana
á almennum málum. e) Pólitísk fræðsla meðal verka-
mannanna. f) Afstaða til allra pólitískra mála.
g) Fylgjast með og hafa áhrif á starfið á þingi og í
bæjarstjórnum.
.). Starfiö utcm vinnustaðarins.
a) Starf á nálægum vinnustöðvum, þar sem engar
sellur eru og vinna að því að stofna þar sellur. b)
Hjálpa smáum og óreyndum sellum á vinnustöðvum í
grendinni í starfinu. e) Pólitísk fræðslu- og upplýsing-
arstarfsemi meðal verkalýðsins, sem býr í grendinni,
og gera allt, sem auðið er til að vinna hann til fylgis.
5. Fræðslmtarf sellcmm.
a) útgáfa blaða á vinnustöðvunum, er sjeu læsileg