Réttur - 01.10.1930, Blaðsíða 37
Rjettur] SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS
349
og skemtileg aflestrar, skrifuð í einföldum verka-
mannastíl. Blöð þessi fjalla fyrst og fremst um dag-
legt líf á vinnustaðnum, óskir og kröfur verkamann-
anna. Blöð þessi má vjelrita, fjölrita eða jafnvel
prenta, eftir því sem kostur er á. b) útvega fjelögun-
um kommúnistiskar bækur og koma upp sameiginlegu
bókasafni, ef auðið er. c) Koma upp lesflokkum og
málfundakvöldum, sem oft geta verið sameiginleg með
mörgum sellum.
6. Starfið meðal verkakvenna.
Mikla áherslu verður að leggja á baráttuna fyrir
hinum sjerstöku kröfum verkakvenna og að vinna
verkakonur til fylgis, á þeim vinnustöðvum, sem konur
vinna á. Sellurnar verða einnig að skipuleggja barátt-
una fyrir hagsmunum húsmæðranna á verkamanna-
heimilunum og starfið meðal þeirra. í þessu starfi
verða eigi aðeins konurnar, heldur líka karlmennirnir í
flokknum að taka þátt.
Nauðsynlegt er, að sellurnar útvegi verkamanna- og
verkakvennafrjettaritara fyrir flokksblöðin á hverjum
vinnustað og velji auk þess fjelaga til að skrifa í þau.
Nauðsynlegt er að allir fundir sellanna sjeu vel undir-
búnir og umræður ekki dregnar á langinn. Málin þarf
að ræða stutt og gagnort, gera nauðsynlegar samþykt-
ir og skifta skipulega með sjer verkum. Leggja þarf
áherslu á, að hver einasti íjelagi beri ábyrgð á fram-
kvæmd ákveðinna starfa.
I hverjum bæ halda sellurnar reglulega sameigin-
lega fundi, t. d. einu sinni í mánuði eða oftar. Á þess-
um sameiginlegu fundum, er kosin stjórn fyrir flokks-
deild kommúnista á staðnum. Slík kosning fer fram t.
d. tvisvar á ári. Sellurnar eru ábyrgar gagnvart þess-
ari stjórn og gefa henni reglulegar skýrslur. En verk-
efni hennar er að hafa umsjón með og stjórna flokks-
starfinu í umdæmi sínu. Hún er ábyrg gagnvart mið-
stjórninni og gefur henni reglulegar skýrslur.