Réttur - 01.10.1930, Page 43
I
Rjettur] HREYFING ÍSL. ÖREIGAÆSKU 355
baráttu og allt svo lágt og jarðneskt. Og loks er öllum
þessum sannindum helt yfir komandi kynslóðir. En
eins og gefur að skilja, eftir öllum réttlætishugtökum,
eru ílátin misjafnlega fín og vel útbúin og innihaldið
ef til vill líka misgott, því að gott getur það nú verið
fyrir það. Þessvegna verða skólar efristéttanna að vera
svolítið »fínni« en fræðslustofnanir fjöldans.
Við skulum nú athuga, hvað það er, sem honum er
kennt. Við skulum horfa ofurlítið á hin helgu, óháðu
sannindi. Hohum er kennd kristinfræði. Að vísu hafði
móðir hans kennt honum fyrstu drögin, og að vísu var
henni kennt af miskunnsömum prestum og háborgur-
um og auk þess hafði hin himneska örbirgð, getuleysi
og kúgun konunnar gert hana enn sannkristnari, en
samt þykir þetta eigi duga. Honúm er kennt þetta mjög
rækilega í skólanum. Hann veit nú, að fátæktin er eigi
böl heldur blessun, því að hún er lykill að sælu himna-
ríkis. »Sjá, því að skrifað stendur. Betur kemst úlfald-
inn gegnum nálaraugað, en ríkur maður i himnaríki«.
En hann veit líka, að þetta ber náttúrlega að skilja
þannig, að að vísu mega menn vera ríkir, en aðeins
eigi festa hugann við jarðneskan auð, heldur aðeins
himneskan. Hann veit líka, að það er sælla að gefa en
þiggja. Hann veit, að það er dýrlegt að gefa fátækum,
og hann lítur með lotningu til Rockefeller og annarra
auðjötna, sem orðið hafa miljónerar af drottins náð og
með því að leyfa verkamönnunum að vinna hjá sér,
en þó eigi sízt vegna sinnar eigin ráðvendni og kristi-
legs hugarfars. Og hann finnur hvað það er dýrlegt,
er þessir menn gefa hinum soltna verkalýð þúsundir
króna. Hann lærir líka »að sælir eru einfaldir og and-
lega volaðir, því að þeirra er guðsríki«. Hann veit, að
alt fer að vilja drottins, jafnvel ekkert hár á höfði
manns fellur án hans vitundar. Guð gerir fátækan og
ríkan. Eilífa lífið er undir því komið að beygja signógu
ljúflega undir guðs vilja. Honum er kennt að trúa á