Réttur - 01.10.1930, Side 50
362 HREYFING ÍSL, ÖREIGAÆSKTÍ tRjettui'
Hver reynir að gera sig sérhæfan í sinni mennt. ó-
brigðul afleiðing þessa er einstaklingshyggjan, sem þó
er blandin hinum forna myndugleika 1. tímabilsins.
Þetta stig er ráðbil borgarastéttarinnar. Síðasta stigið
er auðkennt með því, að stjórn og athöfn fallast í
faðma. Samvinna og samstjórn heildar vinnandi lýðs
koma í stað fornu eiginleikanna. Ræturnar að þessari
breytingu liggja í sameiginlegri vinnu heildarinnar í
verksmiðjunum og þeirri sérhæfingu og samstillingu,
sem öll heildin þarf til að stjórna vélunum. Stig þetta
er í þróun og nær fyrst fullkomnun sinni í kommún-
ismanum. Mörkin milli allra þessara stiga eru eigi skýr.
Hvert fæðir annað af sér. Breytingin þróast innan
hvers stigs, vegna þeirra mótsetninga, er stéttarbarátt-
an felur í sér. Á vissu stigi brýzt hið nýja, til valda.
Unginn brýtur skurn eggsins og kemur út. Það er
byltingin, þessi hræðilega grýla borgaranna. Byltingin
er aðeins eitt stig í þróun. Hún er eðlileg afleiðing þró-
unar í lífs- og atvinnuháttum. — Hún er stökk, sem er
undirbúið af lögmálum hagsmuna og stéttarmótsetn-
ingar, og því betur sem öreigastéttin er undir hana
búin, því minna átak og blóðtöku kostar hún. Bylting
er fyrir hendi. öreigaæska, vinn þú djarft og örugt.
F. U. J. hefja baráttu sína gegn uppeldi og fræðslu
borgaranna. Baráttuformin verða mismunandi. En ó-
hjákvæmilega hljóta þau að skapa andstöðu og upp-
reist í fræðslu- og uppeldisstofnunum borgaranna, alls
staðar þar, sem öreiga-æska er saman söfnuð. í þessu
skyni skipuleggur F. U. J. barnahreyfinguna. Innan
skólans og annarra félaga, þar sem ungir öreigar eru
saman komnir, skipuleggur það starfshópa öreiga, sem
eru þjálfaðir í anda stéttabaráttunnar. Þessir starfs-
hópar verða einskonar forlið öreiganna í skólunum,
sem berst fyrir rétti þeirra og gegn kenningum borg-
aranna á ölium sviðum uppfræðslunnar. Þessir starfs-
hópar berjast gégn myndugleika aðstöðu kennarans og