Réttur


Réttur - 01.10.1930, Síða 51

Réttur - 01.10.1930, Síða 51
Ttjettur] HIÍEYFING ÍSL. ÖREIGAÆSKU 363 verja rétt hvers einstaks öreiga gegn honum. Þeir bera fram kröfur fyrir öreigabörnin, ókeypis fæði, klæði og skólabækur. Þeir standa saman um þessar kröfur og skipuleggja jafnvel verkföll til að fá þær fram. Hreyf- ingin gefur út blöð og flugrit, sem hún dreifir um skól- ana og allar vinnustöðvar þar, sem ungir öreigar eru að starfi. í ritum þessum, sem verða að vera vel og læsilega skrifuð, svo að unglingarnir njóti þeirra, er rætt um hagsmuni þeirra og baráttu, um hin eilífu sannindi borgarastéttarinnar. Sýnt að þessi sannindi eru mótuð af aðstöðu stéttarinnar og þeirri lífsskoð- un, er hún elur, og að þessi sannindi eru hvorki heilög né eilíf, heldur aðeins borgaraleg sannindi, sem flesteru óvinveitt og andstæð verkalýðnum. Þar er sýnt og sann- að, að opinber trúarbrögð hafa aldrei verið annað en valdatæki yfirstéttarinnar, sem skapazt hafa langt aft- ur í grárri forneskju, á tímabili frumkommúnismans, sem tæki eldri stéttarinnar til að tryggja sér völd og fyrirhyggju hinna starfhæfu veiðimanna. Allur mis- niunur á trúarbrögðum á rót sína að rekja til mis- munandi atvinnu- og landshátta. Við hverja byltingu á grundvelli atvinnulífsins breytast trúarbrögðin í sama anda. Eigi þarf annað en að iíta á kristnina á lénsöld- inni og nú, á ráðabili borgarastéttarinnar. — Guð ber alheims svip auðmagnsins. En trúarbrögðin eru þrung- m af anda myndugleikans, spegill af hugsunar-hætti i'áðandi stéttar. Goðsagnirnar (mythurnar) fornu voru npphaflega aðeins auðvelt og auðskilið form, sem fól í súr þekkingu feðranna á náttúruöflunum og gekk þannig í arf til niðjanna. En öll voru þessi öfl færð í mannlegt gerfi, þvi að allur hugsanagangur frum- niannsins er miðaður við manninn, og líkingin færð yfir á náttúruöflin. — »Sólin gengur í kring« »rís UPP«, »og gengur til náða«. Trúarbrögðin falla með stéttunum, ekkert herjar betur á ríki þeirra en sam- eiginleg máttarkennd öreiganna. 24*

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.