Réttur - 01.10.1930, Qupperneq 58
370
HREYFING ÍSL. ÖREIGAÆSKU
[Rjcttur
sníður alla sína bardagahögun eftir stéttakröfum ör-
eigaæskunnar. Barátta og uppeldi eru því engar and-
stæður. Það stendur undir stjórn og áhrifum K. I.* og
K. P.** Það er því tengt allsherjarfrelsisbaráttu alls
verkalýðsins. Fyrir 18. okt. næstkomandi verður S. U.
J. gengið inn í K. J. I. Nokkru seinna boða lið-
hlauparnir til þings í Rvík. íslenzk öreigaæska svarar
þeim á viðeigandi hátt. Hún skildi, hversvegna sigl-
firzkir borgarar hrópuðu með sosialdemokrötum á
bryggjum Siglufjarðar að skilnaði. Hún vissi, að það
var faðirinn, sem bauð týnda soninn velkominn heirn.
íslenzk öreigaæska má eigi trúa því, að kjör hennar
verði nokkurntíma bætt til hlítar í þingsölum eða á
skrifstofum framsóknarkratanna. Hún þarf að berjast
sjálf fyrir kröfum sínum, gagnrýna foringjana, og loks
með eigin heila og höndum steypa kúgurunum af stóli.
Hún ætti að tileinka sér hinar gullvægu hendingar Al-
þjóðasöngsins:
— Es rettet uns kein höhres Wesen
Kein Gott, kein Kaisei' noch Tribun
Uns aus dem Elend zu erlösen.
Können wir nur sfelber tun. —
íslenzk öreigaæska á að velja um, hvort örlög jafn-
aðarstefnunnar skulu lögð í hendur verkalýðsins sjálfs
og stríðið háð á grundvelli stéttabaráttunnar, eða hvort
framkvæmd hennar á að vera skrifstofustarf sosialde-
mokratiskra þingmanna, er sjálfir eru vafnir í ríkis- og
bankaviðjum auðvaldsins. íslenzk verkalýðsæska á að
kjósa um, hvort heldur skal fylgt sosialdemokratiski'i
alikálfa-æsku, er snúið hefir heim til »pabba«, eða
kommúnistiskri öreigaæsku, er skilur, að hún verður
að berjast á stéttargrundvelli og veit, að engin sigr-
andi stétt, hefir tekið völdin, öðruvísi en með ofbeldi.
Ungir öreigar, kjósið! — Komið og berjist með oss!
Ásyeir Blöndal Maynússon.
* Alþjóðasamband Kommúnista. — ** Kommúnistaflokkurinn,