Réttur


Réttur - 01.10.1930, Side 69

Réttur - 01.10.1930, Side 69
líjettur] RITSJÁ 381 hefir ekki eingöngu rætt þjóðféiagsmál, heldur einnig heimspeki- ieg og' náttúrufræðileg efni. En öll þessi mál eru rannsökuð frá sjónarmiði hinnar efnalegu þróunarspeki Marxismans (der ma- terialistischen Dialektik). í tímarit þetta rita margir frægustu rithöfundar og vísindamenn hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyf- ingar. Bæði að efni og innihaldi er tímaritið afar vandað. Því miður er ekki rúm til þess hér, að skýra nákvæmlega frá því hefti, sem hér verður getið, heldur aðeins drepið á helztu grein- ar þess. Fyrsta grein þessa heftis er eftir D. Lurje um »Uppbyggingu sósíalismans í Ráðstjórnar-Rússlandi og' útrýming stórbænda (kulaka) sem stéttar«. Höf. lýsir fyrst því, hvernig verkalýðs- byltingin rússneska leysti jarðaspursmálið í Rússlandi, hvernig verkalýðurinn efldi og treysti bandalag sitt við smábændur og miðlungsbændur, lífgaði verzlunarsamböndin við bændur með samvinnufélagsskap o. s. frv. En með árinu 1927 var endurreisn atvinnulífsins rússneska lokið, og lá það næst fyrir að efla. sem mest stóriðnaðinn, en það gat ekki orðið, ef smábændabúskapn- um hélt áfram og ef stórbændum (kulökum) var g'efið færi á að vaxa upp og þroska auðvaldsbúskapinn. Þá hófust hin mildu umskifti í landbúnaði Ráðstjórnar-Rússlands. Einhver hin stór- feldastá lýðhreyfing' fótækra bænda og miðlungsbænda reis nú upp og' samyrkjubúin þutu upp hvaðanæfa, miljónir bænckr lögðu saman jarðir sínar og gengu til samyrkju, til sameiginlegrar ræktunar á jörðinni, en sneru baki við kotbúskap einstaklinga. Þessi grein D. Lurje sýnir ljóslega sigurför sósíalismans í sveita- bygðum Rússlands. Hún opnar mönnum innsýn inn í einhverja þá stórfeldustu atvinnubylting-u, sem orðið hefir í sögu mann- kynsins, atvinnubyltingu, sem er að eyða mótsetningunni milli borga- og sveitalífs og' mun losa í framtíðinni hina vinnandi bændur úr »fásinnu sveitalífsins«, eins og' Marx orðaði það endur fyrir löngu. Þá er næst ágæt grein um »kaþólskuna í þjónustu fasismans«, eftir R. Nowizki. Höf. rannsakar þar alla starfsemi kaþólsku kirkjunnar á tímabili imperialismans. Bendir hann réttilega á það, að kaþólska kirkjan er eitt hið bitrasta vopn auðvaldsins á okkar tímum, sérstaklega þar, sem auðvaldið hefir tekið upp einræði fasismans. Enn jná nefna grein eftir W. Adoratski um »Heimspekinám Lenins«. Giein þessi varpar skýru ljósi yfir þann þátt í starf- semi Lenins, er snerti heimspekileg efni. f tímaritum hinna ís- lenzku borgara, hafa borgaralegir mentamenn reynt að kasta rýrð á heimspekiþekkingu Lenins (sbr. grein Árna Pálssonar um

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.