Réttur - 01.01.1970, Page 11
Sildarverksmiðja Síldarvinnslunnar h.f. i Neskaupstað.
Það sem er stórreksmr á mælikvarða fámenns
sveitarfélags, getur verið smárekstur á mæli-
kvarða hinna stærri. Þar ber að hafa í huga
mismunandi fólksfjölda og tekjuöflunar-
möguleika þeirra.
Þegar Neskaupstaður gerði út tvo togara
var það stórreksmr á mælikvarða þess stað-
ar, en hefði verið smáreksmr á mælikvarða
Reykjavíkur. Ef Reykjavík hefði stofnað til
sambærilegrar útgerðar hefði borgin gert út
100 togara og þá var um að ræða stórrekst-
ur á hennar mælikvarða. Núverandi bæjar-
utgerð Reykjavíkur væri stórreksmr í Nes-
kaupstað, en ekki í Reykjavík og er hún þó
stærsta fyrirtæki, sem talizt getur áhættu-
rekstur, í eigu sveitarfélags. Þetta mikla fyr-
irtæki svaraði til þess, að Neskaupstaður gerði
út mótorbát.
Kaup á 1000 lesta togara væri stórvirki í
Neskaupstað (um 80 þús. kr. á íbúa), en
smámunir fyrir Reykjavík (um 1500 kr. á
(íbúa), svarandi til þess, að Neskaupstaður
keypti 20 tonna bát.
Með þessu vil ég vekja athygli á því, að
þegar metin er þátttaka og áhætta sveitar-
félaga í atvinnulífinu ber að hafa hina ytri
aðstöðu i huga — fólksfjölda, tekjuöflunar-
möguleika o. fl.
11