Réttur - 01.01.1970, Page 19
Vinnudeilur nálgast nú. — Guðmundur J. ræðir við hafnarverkamenn í maí 1966.
rjrnandi kaupmætti lanna þeirra sem vinnu
hafa.
'— Landflóttinn er niðurstaða stjórnarfars-
Ins síðustu ár. I dag eru það ekki einungis
ntenntamenn sem flýja land. Nú streyma ís-
lenzkir iðnaðarmenn, sjómenn og verkamenn
ur landi á erlendan vinnumarkað vegna þess
að ríkisstjórnin hefur svipt þá trúnni á mögu-
leika landsins. Breytist stjórnarstefnan ekki í
þágu launafólks blasir við enn hrikalegri
þjóðarvoði, enn meiri landflótti. Núna eru 60
rafvirkjar erlendis, yfir 300 verkamenn, á ann-
að hundrað trésmiðir. Auk þeirra hafa hundr-
uð manna flutt úr landi til Astralíu, Kanada,
Bandaríkjanna. Fyrr meir var talað um að
bera út börn. Það var refsivert. Söm er gjörð
ríkisstjórnarinnar í dag, er hún hrekur fólk úr
landi. Það á líka að vera refsivert athæfi.
19