Réttur - 01.01.1970, Síða 31
Menntaskólinn i Reykjavik.
rúmsloft þvingana og hlægilegra tradisjóna,
fasistískir stjórnarhættir, sljóvgandi og heft-
andi nám, eini valkostur um framtíð er skil-
yrðis- og hugsunarlaus þjónkun við status
quo.
I upphafi líkti ég Menntaskólanum í
Reykjavík við minnisvarða um gamla tíma
°g úrelta hugsun. A svipaðan hátt má segja
að starfshættir skólans séu eins og trúarat-
höfn. Leyndinni um allar hreyfingar bak-
sviðs og fastheldninni á fáránlegar tradi-
sjónir svipar helzt til dularfullrar helgiat-
hafnar. Námið er sem samsafn trúarsetn-
inga, þar eru íslenzkar bókmenntir sundur-
hakkaðar af málfræðilegum skýringum, nem-
endum gert að eyða fleiri tímum á dag í að
fletta upp í orðabókum glósum yfir fánýra
hluti, stærðfræðin hefði kannski þótt góð og
gild um nítján hundruð og þrjátíu, tímum er
eytt í að hlýða mönnum yfir heimavinnuna
eða skýra út uppbyggingu rómverska hers-
ins. Hvergi grillir í nokkurn hlut sem snertir
tuttugustu aldar menn. Svo virðist sem um-
hverfið sé ekki til, heldur eru menn mataðir
a gömlum hugsunum og tæknifræðilegri
undirbúningsmenntun, sem setjast eins og
lím á hugsun manna þannig að sífellt verður
erfiðara að greina sjálfstæðar hreyfingar.
Þó að kerfið stefni að einokun, grefur það
hröðum skrefum undan tilveru sinni. Náms-
menn gerast æ óánægðari með hlutskipti
sitt, og þeir verða ekki blekktir með fram-
farahjali um breytingar sem aðeins fela í sér
nýjar útvíkkanir óbreytts ástands. Læri vald-
hafar ekkert af reynslu erlendra starfsbræðra
um áhrif þvingana á skólafólk, eiga þeir von
á skjótri vakningu námsmanna, sem eflaust
eiga eftir að koma eftirminnilega fram á
sjónarsviðið á næstu árum sem aflmikill þjóð-
félagshópur og gagnrýninn.
GUÐRÚN
ERLENDSDÓTTIR :
U M
KVENNASKÓLA-
MÁLIÐ
AndóAhreyfingar meðal ungs fólks, eink-
um namsmanna, eru að verða virkt afl í þjóð-
31