Réttur


Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 14

Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 14
í sögu mannkynsins. Og hann mun halda áfram að hafa áhrif, en af því leiðir, að það hlýtur að verða æ mikilvægara að gera sér grein fyrir eðli hug- mynda hans og þeim hætti, sem þær eru túlkaðar með. Erich Fromm hefur látið svo ummælt'), að það sé eitt hinna einkennilegu og kaldhæðnislegu fyrir- bæra sögunnar, að því séu engin takmörk sett hve hægt er að misskilja og rangfæra fræðikenningar og það jafnvel á tímum þegar gnægð heimilda er fyrir hendi. Engar kenningar hafa verið harðlegar leiknar með þessum hætti en kenningar Karls Marx. Það er þá fyrst, þegar slíkum misskilningi hefur verið rutt úr vegi, að unnt er að hefjast handa um að kynna sér kenningar hans. Hegel komst svo að orði, að öll heimspeki yrði einungis innantóm form- fræði, ef maður gerði ekkert annað en það eitt að staglast á grundvallaratriðum. Augljóst er, að ef taka á marxismann til gagnrýninnar athugunar, verður að skilja hann I raun og veru, en ekki láta sér nægja umsögn um hann. Það verður umfram allt að forðast þá aðferð, sem er of algeng I heimspeki- legum rökræðum, sem sé þá að lýsa afstöðu þess, sem maður á orðastað við, með sömu orðum og maður mundi sjálfur nota ef maður væri á sömu skoðun. Þegar þetta er gert, notar maður ekki hans eigin orð, heldur lagar þau eftir orðalagi, sem a rætur að rekja til annarrar fræðikenningar af allt öðrum toga. Umfram allt þurfa menn að gera sér grein fyrir, að Marx sjálfur (og sama má segja um lærisveina hans) var aldrei gruflandi kenningasmiður, sem hafði áhuga á hugmyndum hugmyndanna vegna né heldur kom hann sem heimspekingur fram með fræðilegt kenningakerfi, sem ætlað var að skýra þróunarsögu mannkynsins i einu og öllu. FRUMSPEKIN OG ÞJÖÐFÉLAGIÐ Marx sagði: „Heimspekingarnir hafa aðeins reynt að skýra heiminn á mismunandi hátt, það sem máli ’) Erich Fromm, Marx's Conception of Man. (Hug- mynd Marx um manninn). skiptir er að breyta honum". En hvernig á að fram- kvæma slika breytingu? Að sjálfsögðu ekki með því að ráðast í að uppgötva undirstöðuatriði rétt- látrar þjóðfélagsskipunar og leitast siðan við að þrörigva þeim upp á umheiminn, heldur með þvi að beita þeim aðferðum, sem rannsóknarvísindin hafa yfir að ráða til þess að uppgötva lögmál hinnar sögulegu framvindu. Marx gerir skýran greinarmun á þeim öflum sem eru að verki í þjóðfélaginu og hinum hugvitssam- legu, en yfirborðskenndu, þönkum frumspekinnar. Honum var vitrænn skoðunarháttur I blóð borinn, en af því leiddi að markmið hans var ekki að höndla sannleikann með huglægum ályktunum ein- um saman, heldur með hlutlægri rannsókn ákveð- inna fyrirbæra. Vísindakenningar verða ekki til i kolli einstakra manna, heldur spretta þær af sögu- legum og samtíma staðreyndum, og þær verða að gangast undir prófun í ósveigjanlegum og ómót- stæðilegum heimi raunveruleikans. Þessi heimur raunveruleikans stendur utan hugsunarferlisins og markar visindamanninum stöðugt brautina við rann- sókn hans eftir ákveðnum reglum. Marx var í slíku rannsóknarhlutverki, þegar hann komst að þeirri niðurstöðu, að móthverfurnar í þjóðfélaginu sjálfu væru uppspretta hinnar sögulegu framvindu. Þess- ar móthverfur valda sifelldum óstöðugleika og til þeirra má rekja uppkomu félagslegra og pólitískra hreyfinga, sem setja sér það mark að yfirvinna hann með róttækri nýskipan mála. Þetta dialektiska ferli felur samt engan veginn í sér, að skilningur og vilji mannsins skipti engu máli fyrir söguþróunina. Marx vísaði hinni eldri efnishyggju á bug að svo miklu leyti sem hún leit á manninn sem leiksopp utanaðkomandi afla. Þessi skoðun fól ekki í sér neina viðurkenningu á gagnkvæminu I svörun mannsins við umhverfinu, á því starfi hans, er mið- aði að breytingu og umsköpun á því — og endur- nýjun sjálfs sin. Það, sem máli skiptir á hverjum einstökum tima, er ekki að setja hugsjónir sósíalismans upp á móti veruleika kapítalismans og leitast við með fortölum að afla stuðnings við framkvæmd þeirra. Það, sem máli skiptir, er, hvort maður I rás manniegra sam- skipta á hverjum tíma játast eða játast ekki undir nauðsyn félagslegrar nýskipunar. Er þjóðfélags- skipunin með þeim hætti, að hinir sívaxandi árekstr- ar innan efnahagskerfisins leiði til hruns og upp- lausnar eða er því öfugt farið? 102

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.