Réttur - 01.08.1970, Síða 23
INGI R. HELGASON:
NOKKRAR HUGLEIÐINGAR
AÐ LOKINNI RÚMENÍUFERÐ
I byrjun september þessa árs fór sendinefnd
frá Alþýðubandalaginu til Rúmeniu í boði Kommún-
istaflokks Rúmeniu og dvaldist þar í 9 daga. i
nefndinni voru Svavar Gestsson, formaður nefnd-
arinnar, Guðrún Guðvarðardóttir, Svandis Skúla-
dóttir, Huida Sigurbjörnsdóttir, Guðmundur J. Guð-
mundsson og Ingi R. Helgason. Nefndin átti tvo
viðræðufundi við nefnd frá rúmenska flokknum, en
fyrir henni var Dimutru Popesku. Auk þessara
tveggja viðræðufunda hitti islenzka nefndin og ein-
stakir nefndarmenn að máli forystumenn Alþýðu-
sambands Rúmeniu og kvennasamtakanna þar i
landi, fulltrúa í borgarstjórn ýmissa borga, forystu-
menn einstakra verkalýðsfélaga, stjórnendur iðn-
fyrirtækja, varaforseta Þjóðbankans og ráðuneytis-
stjóra o. s. frv.
íslenzku nefndarmennirnir heimsóitu m. a. klæða-
verksmiðju, húsgagnaverksmiðju, oliuefnaiðjuver,
flokkssafnið, barnaheimili, oliuhreinsunarstöð i Plo-
esti o. s. frv. Þrátt fyrir þessar heimsóknir og við-
ræðufundi, gafst timi til að stinga sér aðeins i
Svarta hafið og njóta unaðsemda Karpatafjallanna.
Það sannaðist i þessari ferð, hvilikt gagn er að
heilbrigðum samskiptum verkalýðsflokka hinna
ýmsu landa, sem glima við svipuð verkefni við
næsta ólikar aðstæður. Islenzka sendinefndln fór
hlaðin spurningum að heiman og voru sumar nær-
göngular, bæði um ástand og þróun innanlands i
Rúmeniu og utanrikismál og stöðu Kommúnista-
flokks Rúmeniu í hinni alþjóðlegu verkalýðshreyf-
ingu. Viðræðurnar fóru fram í mestu vinsemd og
höfðu rúmensku félagarnir svör á reiðum höndum.
111