Réttur - 01.08.1970, Side 27
Frá bókasafni við skóverksmiðju í borginni Cluj í Rúmeniu.
eða í uppbyggingu sósíalismans, — og hver
flokkur hefur fullt forræði á þessu mati, og
læim ákvörðunum, sem á því eru byggðar.
A sama hátt og það er fáránlegt, að einn
verkalýðsflokkur ætli sér að segja öðrum
flokki fyrir verkum, taka ákvarðanir fyrir
hann, leiðrétta „mistök" hans o. s. frv., er
það jafn fáránlegt af einum verkalýðsflokki
að slíta eðlilegum samskiptum við annan
verkalýðsflokk á þeirri forsendu, að hinn síð-
arnefndi hafi gert „mistök." Slík afstaða, sitt
í hvora áttina, er alger höfnun á fullveldi
flokkanna í samskiptum þeirra, og hún leiðir
í ógöngur, til sambandsleysis og tortryggni.
Hugmyndafræðilegri einokun eða tilraun
til hennar, þarf að útrýma í samskiptum sósí-
alista og sósíalískra flokka og taka í þess stað
höndum saman um sköpun víðtæks samstarfs
og einingar í röðum sósíalismans.
IV
Við höfum gætt þess að skella ekki hurð-
um í samskiptum okkar við aðra verklýðs-
flokka, sögðu rúmensku félagarnir. Við leggj-
um áherzlu á að tala við þá alla, líka þá, sem
standa í opinberum deilum sín á milli. Við
erum ekki sjálfskipaðir sáttasemjarar, en við
höfum ýmsu áorkað í réttar áttir hvað snert-
ir samskipti flokkanna með því að geta talað
við báða deiluaðila. Við teljum það ekki að-
eins rétt að flokkarnir tali saman þrátt fyrir
skoðanaágreining heldur nauðsynlegt fyrir
eininguna í hinu alþjóðlega kerfi sósíalism-
ans, og við erum bjartsýnir á, að svo muni
flokkarnir gera.
Við erum stofnendur Efnahagsbandalags
Austur Evrópuríkjanna (Comecon) og mun-
um starfa þar á þeim grundvelli, sem lagður
var í upphafi, en hann byggir á fullkomnu
fullveldi aðildarríkjanna.
A sama hátt erum við meðlimir Varsjár-
bandalagsins og verðum það. Við tökum hins
vegar ekki þátt í þeim athöfnum þess, er
okkur finnst fara í bág við fullveldi aðildar-
ríkjanna.
Við styðjum eindregið þá tillögu, að Var-
sjárbandalagið og Atlantshafsbandalagið
verði bæði lögð niður, en það þarf að gerast
samtímis og gegnum samninga um afvopnun.
115