Réttur


Réttur - 01.08.1970, Side 28

Réttur - 01.08.1970, Side 28
tJR VALDA- ANNÁL FRAM- SÓKNAR i Framsókn segist nú oft vera eini flokkurinn, sem verkamenn og aðrir launþegar geti treyst til kaup- hækkunarbaráttu, ef hún fái völd og áhrif. Það er rétt að rifja upp nokkur atriði úr valdaferli hennar: 1938 17. marz. Fyrstu samstjórn Framsóknar og Al- þýðuflokksins, ,,stjórn hinna vinnandi stétta" lýkur með því að Framsókn knýr fram gerðardómslög gegn sjómönnum í kaupdeilu og Alþýðuflokkurinn ,,dregur" ráðherra sinn, Harald Guðmundsson, ,,út úr" rikisstjórninni. — Fyrstu ,,stjórn hinna vinnandi stétta" lauk á kúgunartilraun Framsóknar við hinar vinnandi stéttir. 1942 — veturinn Eftir illan feril „þjóðstjórnarinnar" undir forsæti Framsóknar og fjandskap mikinn við verkalýðinn, lýkur henni með þvi að sett eru gerðardómslögin illræmdu gegn verklýðssamtökunum í janúar 1942. Alþýðuflokkurinn segir sig þá úr þjóðstjórninni. Sósialistaflokkurinn skipuleggur skæruhernað verk- lýðshreyfingarinnar og brýtur lögin á bak aftur. — Framsókn hröklast frá völdum. 1942 — haustið Framsókn gerir kauplækkun að skilyrði fyrir myndun vinstri stjórnar. Það verður þvi ekkert úr henni. 1944 3. október. Framsókn sprengir fjögra flokka um- ræður á því að hún álítur kauplækkun nauðsynlega. Um leið býður hún ihaldinu upp á stjórnarmyndun, sem hefði þá beinst gegn verkalýðnum og kaup- hækkunarbaráttu hans. Afstaða Framsóknar til kauphækkunarbaráttu verkalýðsins sést bezt á eftirfarandi tilvitnunum i „Tímann" um þessar mundir: „Tíminn" í ritstjórnargrein 21. júli 1944: „Ef til andstöðu atvinnurekenda kæmi, myndu lika skapast verkföll og aukinn ófriður i þjóðfélaginu, sem yrði atvinnulífinu til mikils trafala. Þó er vafalaust, að slikur ófriður væri þjóðfélaginu ekki skaðlegri en þetta algera undanhald atvinnurekenda í kaup- gjaldsmálunum". „Tíminn“ 29. sept. 1944: „Það hefur aldrei komið betur i Ijós en eftir hina drengilegu framkomu Bún- aðarþings, að allt skraf kommúnista um frið og stjórnarsamvinnu er fláttskapur einn. Ef friðarvilji þeirra væri á nokkurri alvöru byggður, var það minnsta, sem af þeim mátti vænta, að þeir aflýstu öllum verkföllum og leggðu niður alla kauphækk- unarbaráttu, en heiðarlegast hefði verið, að bjóða fram tilsvarandi lækkun á kaupgjaldi og bændur á afurðaverðinu". í tilboði Framsóknar til Ihaldsins um stjórnar- myndun er ekki minnzt á nýsköpun atvinnulífsins, sem Framsókn hafði enga trú á. „Úrræði" hennar birtust i þessari setningu í ritstjórnargrein 7. nóv. 1944 eftir að Timinn áður hafði gert mikið gys að hugmyndunum um nýsköpun atvinnulifsins: 116

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.