Réttur


Réttur - 01.08.1970, Side 38

Réttur - 01.08.1970, Side 38
Alveg sérstakt gildi hefur Moskvusamn- ingurinn frá 12. ágúst fyrir bæði þýzku ríkin. Það verk, sem þeir nafnarnir Willy Brandt og Willi Stoph hófu í umboði flokka sinna, ætti nú að ganga hraðar. Raunhæf viðurkenn- ing á þýzka alþýðulýðveldinu, sem löngu hefði átt að vera komin, er nú orðin hin brýnasta nauðsyn fyrir heilbrigt stjórnmálalíf Evrópu. Norðurlöndin gætu hraðað slíkri þróun með því að taka upp stjórnmálasam- band við DDR strax. SAMSTEYPUR AUÐJÖFRANNA Hér heima reyna vissir reikningsmeistarar að telja þjóðinni trú um að henni sé alveg óhætt að sleppa öllum efnahagslegum vörn- um, því efnahagslíf Evrópulanda miðist við „hið frjálsa framtak einstaklingsins" og „dugnaður og framtakssemi" sé nægilegt til þess að komast að á hinum „frjálsu mörkuð- um" auðvaldslandanna. Meðan þannig er verið að blekkja Islend- inga heldur hinsvegar sú þróun áfram í auð- valdsheiminum með stærri risaskrefum en nokkru sinni fyrr, sem Lenín forðum lýsti í bók sinni „imperíalismanum": samruni vold- ugustu fyrirtækja í allsráðandi einokunar- hringi. Og nú eru það ekki lengur bara smærri fyrirtækin, sem hin stóru gleypa eða traðka undir járnhælnum. Nú eru það stærstu fyrirtæki eigi aðeins eins lands, heldur og margra landa, sem sameinast í eitt: einn vold- ugan auðhring, sem ræður markaði í mörg- um löndum og engin leið fyrir einhverja smáiðnrekendur að keppa við. Hér skulu nefnd nokkur dæmi. í Bretlandi sameinuðust tveir stórir bíla- framleiðendur British Motor Holdings og Leyland Motors Ltd. og fleiri í British Ley- land, ennfremur þrjú stór rafmagnsfirmu Associated Electrical-Industries, General Electric Co. og English Electric Co. í eitt risafyrirtæki. Þá sameinuðust og tveir af fimm stærsm bönkum Bretlands: Westminster Bank og National Provincial Bank í einn banka, með 2 miljarða sterlingspunda höfuð- stól. — I Bretlandi eru nú þrír risa-auðhring- ir, hver með yfir 1 miljarð punda höfuðstól: Shell með 1600 miljónir punda og 69 þúsund verkamenn og starfsmenn, — Imperial Chemical lndustries (I.C.I. efnafræðihringur- inn) með 1390 miljón punda höfuðstól og 187 þúsund verkamenn og starfsmenn — og B.P. með 1445 miljón punda og 75 þúsund verkamenn og starfsmenn. — 2% af hluta- félögum Bretlands ráða 50% af heildarverð- mæti þjóðarframleiðslunnar. I Vestur-Þýzkalandi hafa tveir voldugir vörubílaframleiðendur: Daimler-Benz og Rheinische Stahlverke AG sameinast og ráða þannig tveim þriðju markaðsins. I stáliðjunni slá þeir stærstu sér saman og raftækjafyrir- tækin Siemens og AEG-Telefunken hafa tek- ið upp samvinnu, er leiðir til þess að þau ráða yfir 10% af framleiðslugetu auðvaldsheims- ins á rafölum (Turbogeneratorum). — Tvö stærstu raftækjafyrirtæki Frakklands runnu saman í eitt og svipað gerðist á Italíu. Af 200 stærstu auðfélögum utan Banda- ríkjanna eru nú 65 ensk, 26 vesturþýzk og 23. frönsk. I efnaiðnaðinum er þessi hringaþróun í Vestur-Evrópu hröðust, þannig að auðhring- irnir þar standi nú betur að vígi á þessu sviði gagnvart þeim bandarísku en áður. Af 12 voldugustu efnaiðnaðarjötnum auðvalds- heimsins eru nú 5 amerískir en 7 vestur-ev- rópskir (þrír vesturþýzkir en einn af hvorum hinna: ítalskur, franskur, enskur og hollenzk- ur).

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.