Réttur - 01.08.1970, Síða 41
hagsvígi fyrir yfirdrottnun hvíta kapítalism-
ans í suðurhluta Afríku. Portúgölsku fasist-
arnir, hvíti minnihlutinn í Rodesíu og fasista-
stjórn Suður-Afríku hafa einbeitt sér á að
þetta mikla mannvirki skuli gert. Stíflan er
20 metra löng, 160 metra há og á að fram-
leiða 2000 megavött raforku fyrir öll þessi
lönd frá 1975 og helmingi meira frá 1979-
Suður-Afríka fær 70% þessarar orku. Portú-
gal ætlar að þróa héraðið kringum stífluna
hvað iðnað og landbúnað snertir eingöngu
fyrir hvíta innflytjendur. Vesturþýzk og
frönsk auðfélög hafa tekið að sér að reisa
þetta mannvirki eftir að sænsk og ensk fyrir-
tæki höfðu hætt við af pólitískum ástækðum.
Meðal þeirra eru fyrirtæki, sem Islendingar
kannast við af starfsemi hér eins og Hochtief,
Brown Boveri & Co., Siemens og AEG-Tele-
funken.
Frelsishreyfingar íbúa þessara landa hatast
við þetta risavaxna kúgunarfyrirtæki og hafa
svarið þess dýran eið að hindra byggingu þess
og sprengja það, sem byggt er. Eduardo
Mondlane, leiðtogi Frelimo, frelsishreyfing-
ar Mosambík-búa, sagði að ef þetta fyrirtæki
hepnaðist hefðu hinir hvítu kúgarar Afríku
unnið endanlega. Hann var myrtur. — Bar-
áttu hinna kúguðu svörtu íbúa Afríku harðn-
ar í sífellu — og samúðin með þeim vex í
Evrópu. Meira að segja sósíaldemókrataflokk-
ur Vestur-Þýzkalands ákvað nýlega að styðja
þjóðfrelsisbaráttu þeirra og styrkja fjárhags-
Iega.
neyð
OG ÓGNARSTJÓRN I
SUÐUR-AMERIKU
Schlesinger, sagnfræðingurinn, sem var
ráðunautur John F. Kennedy, reit um órétt-
Fórnarlamb portúgalska hersins i Mósambik.
lætið í Suður-Ameríku þessi orð: „Einum
átmnda fleira fólk en er í Bandaríkjunum
verður að lifa af einum áttunda hluta okkar
þjóðartekna. 5% íbúanna fær þriðjung þjóð-
arteknanna, en 70% verða að lifa í ólýsan-
legri fátækt. En stjórnendurnir miða allt við
að láta ástandið haldast óbreytt."
Neyðin vex í sífellu. Suður-Ameríku-búar
hafa minna að éta í dag en fyrir 30 árum.
70% íbúanna í Honduras þjáist af næringar-
skorti. I Haití hungra yfir 80% íbúanna.
1500 börn deyja daglega úr hungri í Suður-
Ameríku samkvæmt skýrslum barnalækna á
þingi í Mexícoborg.
I Suður-Ameríku þykir það eðlilegt þjóð-
félagsástand að einn nauta-barón eigi hundrað
þúsund nautgripi, en að þrír fjórðu hlutar
allra barna fái aldrei mjólk. Stórjarðeigendur
og námueigendur eignast miljarði, en t.d. í
Haití eru árstekjur rúmar 6000 ísl. krónur.
Kúgunin er svo gengdarlaus að t.d. á naut-
gripabúi í Argentínu sker verkstjóri með hníf
sínum eyrað af verkamanni, ef hann dirfist
að mögla. Barnadauðinn er 30%. Væntan-
legur meðalaldur er 43 ár hjá karlmönnum,
49 hjá konum. 9 af hverjum 10 íbúðum í
Honduras hafa moldargólf. Rennandi vatn
er aðeins í 4,5% íbúða í Chile, aðeins 4,2%
129