Réttur - 01.08.1970, Blaðsíða 45
syn þess að reka róttækari pólitík gagnvart
auðvaldinu og taka upp beina samvinnu við
kommúnista.
ÍTALÍA
Kommúnistaflokkur Ítalíu vann sem kunn-
ugt er mikinn sigur í bæjarstjórnakosningun-
um síðasta sumar. Rétt er að vekja athygíi
á einu sérstöku atriði í sambandi við þessar
kosningar, sem er einstakt fyrir Italíu og það
umburðarlyndi og gagnkvæman skilning,
sem ríkir þar á meðal róttækra sósíalista með
mismunandi skoðanir:
„Vinstra" megin við Kommúnistaflokk
Italíu eru ýmsir smáhópar svo sem: Ahang-
endur fjórða alþjóðasambandsins (trotskistarh
Samband ítalskra kommúnista (Marxistar -
Lenínistar) og Kommúnistaflokkur Italíu
(Marxistar - Lenínistar), hvortveggja hinir
síðarnefndu fylgjendur Mao. Allir þessir þrír
hópar skoruðu á fylgjendur sína að kjósa
Kommúnistaflokk Italíu, en gagnrýndu um
leið ýmislegt í pólitík flokksins. Trotskistarnir
skrifuðu „Unita", aðalblaði KFIt., og spurðu
hvort blaðið áliti þá enn „klíku morðingja og
njósnara". Blaðið svaraði og kvað slíkar lýs-
ingar „tilheyra aðferðum liðinna tíma, sem
nú væru lagðar niður". Jafnframt undirstrik-
aði blaðið hið heilbrigða í einingu þeirri,
sem ákvörðun hópanna væri táknræn fyrir,
þá einingu, sem jafnframt varðveitir sjálf-
stæði hvers hóps.
PARAGUAY
í Paraguay er kaþólska kirkjan þjóðkirkja.
Nú hefur öll kaþólska kirkjan þar tekið af-
stöðu gegn fasista-einræðisstjórn Stroessners.
Hefur þessi andstaða smásaman verið að þró-
ast. Þannig skoraði blaðið „Communidad",
málgagn biskupanna, í júlí 1969 á þjóðina
að mótmæla komu Nelson Rockefellers, sem
var sendiboði Nixons. Þegar ríkisstjórnin
svaraði með fangelsunum, gerði ráðstefna
biskupanna sér lítið fyrir og bannfærði inn-
anríkisráðherrann og stöðvaði allar trúarat-
hafnir.
Þannig vex andúðin gegn einræðisstjórn-
um Suður-Ameríku. Meira að segja í Brasilíu
hefur íhaldssöm biskupa-ráðstefna gefið út
hirðisbréf til að mótmæla pyntingum póli-
tískra fanga.
ÍRAK
í írak er enn af hálfu Baath-flokksins og
ríkisstjórnar hans beitt hinum svívirðilegusm
ofsóknum gegn kommúnistaflokknum. Félag-
ar hans eru fangelsaðir án dóms og laga,
pyntingar og morð á kommúnismm færast í
vöxt. Meðal forysmmanna kommúnista, er
myrtir hafa verið nýlega eru Sattar Khdair,
miðstjórnarmaður, og Mouhammed Ahmed
al-Chidari.
Kommúnistaflokkur írak er einn af þeim
hetjuflokkum sósíalismans, sem engar ofsókn-
ir hafa getað bugað. Rétmr hefur áður (t.d.
í grein í 48. árg. 1965 á bls. 39—42) skýrt
frá einstökum atriðum ofsóknanna gegn hon-
um og hetjulegrl baráttu hans.
133