Réttur - 01.01.1973, Page 23
EINAR OLGEIRSSON
BANDAMENN?
- BANDINGJAR
Afstaða vor íslendinga gagnvart núverandi
valdhöfum Bandaríkjanna er prófsteinn á
manndóm og reisn þjóðar vorrar, — próf-
steinn á það hvort við höfum enn þá til-
finningu fyrir arfi vorum og skyldum sem
þjóðar, er var kúguð í 600 ár, — prófsteinn
á það hvort hún rís upp mögnuð tilfinning-
unni um þá skyldu, er baráttusaga þjóðar-
innar leggur henni á herðar eða leggst í
duftið sem skóþurrka hryllilegasta morðvalds
mannkynsins.
Það dugar engin yfirbreiðsla eða sjálfs-
blekking í þessu efni.
níðingsvaldið
Valdhafar Bandaríkjanna hafa ráðizt á
Vietnam án þess að segja því stríð á hendur
og drepið þar mannfólkið, eitrað akra og
skóga ,þurrkað út bæi og borgir hátt á ann-
an áratug.
Valdhafar Bandaríkjanna lugu upp árás-
inni í Tonkinflóa til að blekkja þjóðina með
málamyndarátyllu til árásarhernaðar. Fjórir
forsetar Bandaríkjanna hafa síðan í sífellu
logið að þingi og þjóð, til þess að halda áfram
morðum sínum á einni fátækustu, en heitast
frelsisunnandi þjóð veraldar. Allt er þetta nú
viðurkennt í Bandaríkjunum sjálfum.
Valdhafar Bandaríkjanna hafa kastað á
þetta litla land yfir 7 miljónum smálesta af
sprengjum, eða næstum fjórum sinnum meira
magni en varpað var á Þýzkaland í heims-
styrjöldinni síðari. I morðæði Nixons um jól-
in 1972 var á hverjum degi varpað svipuðu
sprengjumagni á Vietnam og atomsprengjan
á Hiroshima 1945 hafði inni að halda.
Þessir valdhafar eru ekki bara Nixon. Það
þýðir ekki að ætla að krossfesta einn stríðs-
glæpamann — hvort sem hann heitir Nixon,
Hitler eða annað, — fyrir þá stríðsglæpi,
sem heil valdaklíka er sek um. Eisenhower
Bandaríkjaforseti gaf þeirri klíku það nafn,