Réttur - 01.01.1973, Síða 31
upp í 64% á sama tíma. Fyrirtækin kaupa upp
hlutabréfin til þess að geta öðlazt meirihlutavald
og þannig geta þau ráðskazt með fyrirtækin
að eigin vild án þess að taka tillit til vilja þeirra,
sem eiga minnihluta hlutabréfanna. En þetta segir
ekki alla söguna. EBE greiðir götuna fyrir auð-
valdið é alla vegu. Stærstu auðfyrirtækin slá sér
saman og verða þannig ennþá sterkari og ein-
okunin verður enn grimmilegri. T.d. sameinuðust
Commerzbank (þriðji stærsti banki I Þýzkalandi),
Credit Lyonnais (næst stærsti banki i Frakklandi)
og Banco di Roma (þriðji stærsti banki á Italíu),
einnig bilaverksmiðjurnar Fíat og Citroen. Á bak
við þetta allt standa aðeins örfáir menn. I V-Þýzka-
landi eru einokunarherrarnir taldir vera aðeins 600
að tölu, eða 0,01 prómill af þjóðinni. 0,01 prómill
þjóðarinnar hefur í hendi sér og ræður yfir af-
komu 90% þjóðarinnar.
ALÞÝÐUNNI BLÆÐIR
Verkamenn — Atvinnuleysi er mikið I EBE. I
stækkuðu EBE eru atvinnulausir um 3,5 miljónir.
Auðhringarnir hafa sterka aðstöðu til að þvinga
verkamenn. Þeir geta flutt vinnuaflið eftir því hvar
þess er þörf. Erlendir verkamenn (Gastarbeiter)
þiggja með „þökk" hvað sem býðst og oft eru
þeir undirborgaðir. Tilfæringar og hagræðingar
(rasjonalisering) á vinnustöðum leiða oft til þess
að verkamönnum er fækkað og valda öryggisleysi
á vinnustöðunum. Enginn veit hvar verður hagrætt
næst. I Lorrainehéraði I Frakklandi er ákveðið að
hagræða 12000 stólverkamönnum burt á 3 árum.
I Arras hringir biskupinn bjöllu dauðans; bærinn
er að lognast út af, allir eru farnir.
I verksmiðjum í V-Þýzkalandi og Frakklandi hafa
fyrirtækin fastráðið vopnaða umsjónarmenn
(agenta), sem hafa það hlutverk að hindra
„uppþot".
Bændur — Auðhringarnir græða lítið á bænd-
um. Þeir vinna ekki fyrir auðhringana og þeir
kaupa litlar vörur af þeim. EBE hefur hafið stór-
herferð á hendur bændum. Bændur eru hraktir af
býlum sínum inn til iðnaðarþéttbýlisins. Mörg héruð
eru orðin hálfgerð draugahéruð.
I miklum mótmælum, þegar þændur hópuðust
til Brussel til að mótmæla útrýmingu stéttarinnar,
gat að lesa á slagorðaborðum: „ffitler útrýmdi
Gyðingum — Mansholt útrýmir bændunum". öam-
kvæmt Mansholt-óætluninni á helmingur bænda að
vera horfinn fyrir 1980.
V-ÞÝZKALAND OG FJÓRÐA RÍKIÐ
Þegar EBE var stofnað, var Frakkland sterkasta
ríkið í Evrópu. Flagsmunir Frakklands gengu fyrir
þegar um mikilvægar ákvarðanir var að ræða. En
þróunin leiddi til þess að það voru þýzku auð-
hringarnir sem uxu hraðar en þeir frönsku. Banda-
rískt fjármagn, blóðgjöf Þýzkalands eftir stríð,
lífgaði svo upp þýzku auðhringana að þeir hafa nú
vaxið fram úr öðrum auðhrlngum í Evrópu og eru
orðnir lífgjöfum sinum i Bandaríkjunum hættulegur
keppinautur á heimsmarkaðinum.
47% af bílum og 42% af stálvörum í EBE eru
framleidd í V-Þýzkalandi.
Pólitísk þróun hefur fylgt þeirri efnahagslegu
eftir. Willy Brandt tók við af De Gaulle, sem sterki
maðurinn í EBE. 12 af 25 stærstu auðhringum í
EBE eru þýzkir. V-þýzku einokunarhringarnir sem
standa að baki Brandt, eru þeir sömu og lyftu
Hitler til valda á sínum tima. En þó þeir hafi sett
upp lýðræðis-svipinn að þessu sinni er takmarkið
það sama og áður.
EBE ER HEIMSVALDASINNAÐ
V-Þýzkaland skortir tilfinnanlega hráefnalindir.
V-þýzku auðfyrirtækin verða að flytja inn alla oliu,
96% af járni, 88% af blýi o. s. frv. Og á sama tíma
er þörfin fyrir fjárfestingamarkaði gífurleg. Bara
á árinu 1970 fjárfestu v-þýzku auðfyrirtækin um 20
miljarða marka (DM) erlendis.
Þing EBE heldur verndarhendi sinni yfir venju-
bundnum hagsmunum Krupps, þegar það bendir
á að EBE sé stærsti hráefnainnflytjandi heims og
segir: „Þetta sýnir, að það er óhemju mikilvægt
að tryggja iðnaðinum í EBE aðgang að hráefnum
á því verði, sem ekki er lakara en það verð, sem
keppinautarnir í öðrum heimshlutum verða að
greiða..... Það er ekki útilokað að .... EBE,
á sama hátt og keppinautar þess, verði að reka
virkari pólitík til þess að útvega hráefni, sem finn-
ast utan landamerkja EBE .... Svipað vandamál
er í sambandi við orku, einkum þegar um er að
31