Réttur


Réttur - 01.01.1973, Side 33

Réttur - 01.01.1973, Side 33
vilja gegn kúgun og arðráni. Það þarf EBE-her til að halda öllu í ,,Röð og Reglu". Sömuleiðis verður EBE að verja hráefnalindir sínar og fjárfestingar víðsvegar um heim. EBE verður að knýja kröfur sínar gegn öðrum heimsvaldasinnuðum rikjum, fram með valdi. Evrópa sem herveldi er ekki úti- lokað eftir tiltölulega fá ár. Hervæðing í Þýzka- landi hefur ekki verið eins ör og nú síðan á dögum þriðja rikisins. Á 15 árum hafa útgjöld til hermála fjórfaldazt. Árið 1970 voru útgjöldin um 20 miljarð- ar DM. FRIÐUR í EVRÓPU EBE-ríki og EBE-her — hefur þetta frið í för með sér? NEI. Almenningur í Evrópu lítur auðsöfnun auð- hringanna illum augum og baráttan gegn auðhring- unum er að hefjast. Almenningur i EBE hefur ekki hagnað af stækkun EBE, aðeins auðhringarnir. NEI. EBE eykur hernaðarlega kúgun hvar sem það setur niður klær sínar. I dag berst franski herinn gegn alþýðunni í Tsjad með álika aðferðum og vopnum og Bandarikjamenn nota í Vietnam. Afríkönsk alþýða sér hvernig hetjuleg barátta víet- nömsku þjóðarinnar er að færa henni sigur yfir bandarísku heimsvaldasinnunum. Afríkönsk alþýða mun berjast af sama hetjuskap gegn EBE heims- valdasinnunum og ekki gefast upp þó að EBE- herinn sjái svo um að hennar barátta verði álika blóðug. NEI. Árekstrar milli EBE-heimsvaldastefnunnar og Bandarikjanna og jafnvel Sovétríkjanna geta fljótt leitt til heimsstyrjalda. Við sjáum að heims- valdasinnarnir hafa ekkert lært af sögunni og vilja ekki læra af því það myndi skaða þá. Styrjaldir, sem fellt hafa miljónir manna og valdið óskaplegu tjóni, eru ekki auðvaldsherrunum óviðkomandi. Þær eru bein afleiðing af sókn þeirra i meiri auð, stærri markaði og ódýrara hráefni og vinnuafl. Barátta gegn auðvaldsþróuninni er barátta fyrir friði. Barátta gegn EBE er barátta fyrir friði i Evrópu og í heiminum sem heild. Engin barátta fyrir friði fer friðsamlega fram. Auðvaldið er ekki tilbúið að láta af gerðum sínum, arðráni og kúgun, og beitir því óspart valdi sínu, hervaldi, lögreglu og efnahagsvaldi í öllum myndum, gegn þeim sem risa upp gegn ofríkinu. Hinum undirokuðu stéttum er þvi nauðsynlegt að búa sig undir harðvítuga baráttu, jafnvel vopnaða, til þess að þær eigi ein- hverja von um að bera sigur úr býtum. Friði verður aldrei komið á fyrr en tekizt hefur að steypa auð- valdinu og skipting hinna efnalegu gæða verður réttlát samkæmt vilja og þörfum alþýðunnar, sem skapar verðmæti þau sem allir menn lifa af. Þess vegna er barátta gegn heimsvaldastefnunni barátta fyrir friði. 1. Hernaðarbandalög sem Bandarikin taka þátt í. 1) Amerika 1. Inter-American Treaty of Reciprocal (Rio- bandalagið) stofnað 2. sept. 1947. 2. Aukagrein við NATO, stofnuð 4. apríl 1949, telur auk Bandaríkjanna: Kanada, Island, Grænland, Bahama- og Bermúdaeyjarnar. 3. Gagnkvæmissamkomulag við Panama frá 2. marz 1936. 2. Evrópa 1. North Atlantic Treaty (NATO), Atlantshafs- bandalagið, stofnað 4. april 1949. Aðildarlönd: Bandarikin, Belgía, Kanada, Danmörk, Frakkland, Island, Ítalía, Lúxem- burg, Holland, Noregur, Portúgal, England, Grikkland, (aðili frá 1952), Tyrkland (aðili frá 1952), V-Þýzkaland (aðili frá 1955). 2. Yfirlýsing um samkomulag um endurnýjun varnarsamnings milli Bandaríkjanna og Spán- ar frá 26. september 1953 var gefin út 26. september 1963. 3) Vestur-Asia 1. Viðaukinn við NATO frá 1952 með Grikk- landi og Tyrklandi. 2. Bandaríkin aðili að CENTO-nefndunum (The Pact of Mutual Cooperation) — hið svokall- aða Bagdadbandalag — milli Irak, Tyrklands, Englands, Pakistan og Iran; stofnað 24. febr. 1955. Bandarikin eru aðili að hernaðarlegu og efnahagslegu nefndunum og auk þess í nefnd þeirri sem sér um að bæla niður ólgur og uppþot í þessum löndum. Bandaríkin hafa áheyrnarfulltrúa á ráðsfundunum (Council meetings). 33

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.