Réttur - 01.01.1973, Blaðsíða 37
Erich Honecker — Angela Davis.
„Við sjáum hér hvað það þýðir fyrir
verkalýðsstéttina að hafa valdið. Það fyllir
mig stolti að hitta hér í Friedrichstadt-
Palast menn og konur, sem hafa haft for-
ustu um að hrinda kenningum Marx, Eng-
els og Leníns í framkvæmd. Aðalritari
Sósíalistíska Einingarflokksins, Erich Hon-
ecker, þjáðist tíu ár í víti fasistisku fanga-
búðanna og ég veit að hér eru margir
menn og konur auk félaga Honeckers, sem
á myrkustu stundum Þýzkalands fengu að
kenna á járnhælnum. Eg fyllist því gleði
við að sjá þúsundir æskufólks hylla þessa
menn og konur. Megi sá dagur nálgast,
þegar menn og konur, sem dveljast nú í
dýflissum Bandaríkjanna vegna skoðana
sinna, fá slíkar móttökur þar. Þá væri leið-
in opin til fagurrar framtíðar fyrir land
vort."
Þegar Angela Davis kom á fund Hon-
eckers, sagði hún:
„Það er furðuleg og dásamleg tilfinn-
ing fyrir mig að vera gestur hjá foringjum
heils lands, því við erum því vön að berj-
ast gegn leiðtogum lands vors."
37