Réttur


Réttur - 01.01.1973, Page 39

Réttur - 01.01.1973, Page 39
EINAR OLGEIRSSON PÓLITÍSKT BAKSVIÐ E FNAHAG SVAN DANS Á hverju hausti í tæpa þrjá áratugi hafa íslenzk stjórnmál snúizt um það að „leysa efnahagsvand- ann". Misjafnlega mörg núll hafa verið sett aftan við misjafnlega háa tölustafi og viðkomandi ríkis- stjórn tilkynnt að þessar fúlgur verði að fást, ann- ars stöðvist atvinnulífið. Hvernig stendur á þessu? Af hverju er þjóð- félagsheildin látin bera ábyrgð á atvinnurekstri ,,hins frjálsa framtaks"? Hvernig er þvi pólitiska þaksviði háttað, sem gerir islenzkt auðvaldsskipu- lag gersamlega frábrugðið auðvaldsþjóðfélögum nágrannaþjóðanna að þessu leyti? Þar er sá at- vinnurekandi látinn fara á hausinn, sem tapar, — en hér virðist þjóðfélagið eiga að tryggja að allir græði á öllum. HVENÆR HÓFST ÞETTA? Þessi tegund „efnahagsvanda", sem nú er glímt við hófst fyrir tæpum þrjátiu árum. Hann hófst við það að verkalýðurinn varð nógu sterkur, til þess að sætta sig ekki lengur við fá- tæktina og launakúgunina, — en ekki nógu vold- ugur og nógu pólitískt þroskaður sem heild, til þess að ráða þjóðfélaginu og stýra þvi eftir sínum hugsjónum. Þar með hefst efnahagsvandi burgeisastéttar, sem enn ræður ríkjum, en er ekki nógu sterk til þess að geta lækkað laun verkalýðsins, — póli- tískt of veik til þess að þora til lengdar að láta atvinnuleysið sverfa að, — en vill fá að græða á öllu, sem hún leggur I, án þess að vera knúin til þess að skipuleggja atvinnurekstur sinn af viti eða umskipuleggja hann í sifellt stærri og betur reknar heildir. — Og þessi burgeisastétt fer að leita að nýjum leiðum til að geta haldið áfram að græða án þess að viturlegu skipulagi væri komið á atvinnureksturinn. Ein höfuðleiðin sem hún fór var verðbólgan: 11% á ári að meðaltali i 30 ár. Burgeisastéttin átti ekki við þessi vandamál að striða í hinum „frjálsa" kapitalisma millistriðsár- anna. Þá bjó verkalýðurinn við fátækt og atvinnu- leysi, oft við sultarkjör. Og þá fóru atvinnurekendur á hausinn samkvæmt eðli hins „frjálsa" kapital- isma, — sem þeim er talin trú um að sé svo indæll, — og að lokum voru „Kveldúlfur" og „Alliance", voldugustu togarafélögin, og jafnvel 39

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.