Réttur - 01.07.1977, Blaðsíða 28
vera kjarninn í framkvæmdum á íslandi
framvegis sbr. yfirlýsingar um 20 ál-
bræðslur frá Sjálfstæðisflokksmönnum.
Við eigum alveg tvímælalaust að hag-
nýta orkulindir okkar. Þær eru Itíu dýr-
mætasta auðlind sem við eigum, en við
verðum að gera það á þann hátt að við
ráðum gersamlega yfir hagnýtingunni og
megum ekki hleypa inn í landið fleiri er-
lendum fyrirtækjum, en því miður er
búið að gera. Efnahagslegt og stjórnar-
farslegt sjálfstæði Islands er forsenda þess,
að við getum náð þeim markmiðum af
eigin rammleik sem við stefnum að.
ABS: Baráttan gegn lierstiiðvunum er
eitt af þessum sjálfsögðu stefnumálum
sem ég talaði um í upphafi. Við höfum
lagt okkur verulega fram og, eins og
Magnús var að segja, höfum við náð þó
nokkrum árangri. Þó höfum við ekki náð
lokasigrinum, þar hefur alltaf skort
herslumun. í báðum vinstri stjórnunum
var það þannig að samstarfsflokkar okkar
voru neyddir af almenningsáliti til að
skrifa undir býsna mikið en áhrifamiklir
menn í þeim flokkum leituðu alltaf lags
að komast undan því að framkvæma það
sem þeir höfðu þó lofað. Þetta tókst þeim
því miður í báðum tilvikunum.
Af þessu megum við læra, að áríðandi
er að ná sterkri samstöðu inn í aðra
stjórnmálaflokka, þannig að þeir sem
Iiafa hag af ])ví að hafa herinn hér eða
trúa á ágæti hans verði fyrir það miklum
þrýstingi sinna flokksmanna, að þeir sjái
sér ekki annað fært en gefa eftir. Þarna
eru fyrst og fremst möguleikar innan
Framsóknarflokks, nokkrir innan Al-
þýðuflokks og alls ekki engir innan Sjálf-
stæðisflokks. Samtök herstöðvarandstæð-
inga hafa starfað án þess að vera á flokks-
pólitískum grundvelli og þar þarf að
safna saman öllum andstæðingum hers-
ins. Þetta hefur gengið misjafnlega eins
og við vitum og yfirleitt hefur þar verið
yfirgnæfandi og áberandi fólk, sem ekki
vill telja sig til hinna borgaralegu flokka.
Okkur hefur ekki tekist að víkka sam
tökin nægilega mikið nú í seinni tíð og
það er veikleiki þeirra í dag.
— Er von til pess að koma hernnm i
burtu i samstarfi við þessa tvo flohka eftir
reynslu úr tveimur vinstri stfórnuml
LJ: Slík úrslit ráðast algerlega af al-
menningsálitinu. Ef okkur tekst með
mikilli vinnu að fá fjöldasamtök og fólk-
ið almennt til þess að þrýsta nægilega á,
þá gela þessir flokkar vafalaust eftir. Sé
þessi þrýstingur ekki til staðar í nægilega
ríkum mæli, munu þeir hlaupa frá sam-
þykktum sínum, eins og við höfum
reynslu af. Við verðum þess vegna að
halda áfram baráttu okkar fyrir, að fólkið
átti sig á því, að málið liggur í höndum
þess. Því miður er allt of áberandi ann-
að slagið, að fólk dofnar í baráttunni
og telur þetta óviðráðanlegt verkefni.
Með nægilega miklum bakþrýstingi er
hægt að sveigja flokka eins og Alþýðu-
flokkinn og sérstaklega Framsóknar-
flokkinn. Slíkt verður hins vegar ekki
gert eingöngu með að fá þá til að skrifa
undir yfirlýsingar.
MK: Það er staðreynd, að meirihluti
þjóðarinnar þekkir ekki annað ástand en
hersetið ísland.
SÓSÍALÍSKT ÞJÓÐ-
FÉLAG - HVENÆR?
— Að síðustu: Hvaða liorfur teljið þið
á, að við náum þeim umtalsverða árangri
172