Réttur - 01.07.1977, Blaðsíða 31
ERLENDURPATURSON:
HIN VONDA SAMVISKA
NORÐURLANDA
Erindi um norræna samvinnu,
flutt í útvarpið á Ólafsvöku 1977
Þegar við tölum um Norðurlönd og
um norræna samvinnu, verðum við fyrst
að gera okkur grein fyrir, um livað verið
sé að ræða.
Og ef við trúum á þessa hugsjón, nefni-
lega að þessi lönd hér í norðri og fólkið,
sem hér býr, eigi eitthvað sameiginlegt,
sem er þess virði, að eitthvað sé fyrir það
gert — þá verðum við líka að breyta sam-
kvæmt því og leggja eittlivað í sölurnar.
Samábyrgð sem byggist á gagnkvæmri
viðurkenningu og virðingu finnst mér
vera réttu orðin í þessu sambandi.
Hvernig er þá umhorfs?
Norðurlandabúar eru 22 miljónir að
tölu. I þessum hóp eru 7 þjóðir, taldar
frá vestri til austurs: Grænlendingar, ís-
lendingar, Færeyingar, Norðmenn, Dan-
ir, Svíar og Finnar. Og eru þá Samar
ótaldir, en þeir liafa algera sérstöðu.
Grænland er stærst að flatarmáli, rúm-
lega 2 milj. ferkílómetra. Þar á eftir kem
ur Svíþjóð með 400.000 ferkílómetra, svo
koll af kolli. Færeyjar reka lestina með
1.400 ferkílómetra.
Mannfjöldinn í Svíþjóð er 8 miljónir.
Færeyingar eru 40 þús. að tölu.
Frá syðsta hluta Danmerkur til nyrsta
hluta Grænlands og Svalbarða er 4.000
km leið, en frá Vestur-Grænlandi til
Austur-Finnlands 3.000 km.
Löndin fjögur, Finnland, Svíþjóð,
Noregur og Danmörk, eru öll í einum
hnapp og föst við meginland Evrópu.
175