Réttur - 01.07.1977, Qupperneq 36
áunnist. Því áliarn, áfram liggja sporin.
Þegar við nú á þessum tímamótum lít-
um raunsæjum augurn yfir farinn veg, þá
vaknar sú spurning, hvort margt af því
sem áunnist hefur, sé ekki dálítið yfir
borðskennt og komi fólkinu í þessum
löndum mikið við.
Fer ekki margt af því sem t. d. Norður-
landaráð starfar að, í augum almennings,
t. d. í augum íslenska bóndans, græn-
lenska veiðimannsins, færeyska fiski-
mannsins, hjarðmannsins í Lapplandi,
smábóndans og fiskimannsins í Norður-
Noregi, verkamannsins í stórborgum
Skandinavíu — fyrir ofan garð og neðan?
Auðvitað getum við sagt, að þetta fólk
sé ekki nógu menntað til þess að skilja
mikilvægi þessa samstarfs. En er Jrað
nægileg röksemd? Ég hygg ekki.
Getum við ekki leitað að og fundið
einhvern samnefnara fyrir það sem hrær-
ist í fólkinu sjálfu í öllum löndum okkar?
Ég hef verið að velta þessu fyrir mér og
hef komist að niðurstöðu. Það er engin
ný uppgötvun, sem ég hef gert, en nýtt
má kalla það, að ég tel æskilegt, jafnvel
sjálfsagt, að Norðurlandaráð og stjórn-
málamenn jress, í stað þess að sneiða hjá
þessum vandamálum — eins og hingað til
hefur verið gert — horfist í augu við þau
og reyni í sameiningu að finna lausn á
þeim.
Við spyrjum þá: Hvað er það sem hrjá-
ir fólkið í dag?
f - 'A -
Mótmælaganga í Færeyjum gegn EEC.
l -T- Vv aB
i "-JhR ý I
/ 1 ’ wm 'fll
. ..... •. •
f80