Réttur


Réttur - 01.10.1979, Síða 3

Réttur - 01.10.1979, Síða 3
KOSNINGAÚRSLIT OG ÞJÓÐFÉLAGSÞRÓUN Eftir kosningarnar 2. og 3. desember 1979 og þær tilraunir til stjórnarmyndana, sem gerðar hafa verið, er nauðsynlegt að þjóðin öll geri sér Ijóst hver hætta er á ferðum. Það verður vart haldið lengur áfram á þeirri braut, sem bandarískt efnahagsvald yfir íslandi knúði þjóðina inn á með áhrifum sínum, einkum 1947-51, — braut látlausrar verðbólgu, sem skóp hér allsterkt braskaravald, er græddi á gengislækkunum og verð- bólgu með því að lækka með þeim aðferðum laun verkamanna, minnka stórum raun- gildi bankalána sinna (stela þannig sparifénu), en hækka að sama skapi verðgildi fasteigna sinna. Tilraun ihaldsins tii þess að rýra stór- um lífskjör alþýðu með „leiftursókn“ sinni, koma á atvinnuleysi og stela ríkis- fyrirtækjum, mistókst að þessu sinni - og verður vart reynd aftur í því formi, sem sú sókn var hugsuð. I. Hver verður þjóðfélags- þróunin á íslandi? Tilraun ,,vinstri“ flokkanna til stjórn- armyndunar mistókst - og það er nauð- synlegt að þeir, sem kosið hafa þá flokka, 8'eri sér ljóst hvers vegna slíkar tilraun- lr hljóta að mistakast eins og að er staðið. Framsóknarforustan hafði stór orð um íhaldsandstöðu sína og vinstri stefnu fyrir kosningar, — en Jrver er alvaran? Þjóðin þekkir þann leikaraskap Framsóknar allt frá 1949, er kjörorðið var „Stríð gegn peningavaldinu í Reykjavík“ — og eftir kosningar var mynduð stjóm með pen- ingavaldi Ihaldsins til að heyja sex ára stríð gegn verkalýðnum — uns vei’kalýð- ur Reykjavíkur lagði hana að velli með sex vikna verkfallinu 1955. „Fagurt skal rnæla, en flátt hyggja“, er einkennið á stefnu vcddhafanna í Fram- sókn: hernáms- og olíufursta Reykjavík- urvaldsins í þeim flokki, sem blekkir heiðarlega samvinnumenn og bændur til fylgis við sig með fagurgalanum, en hindrar síðan með hótunum í krafti pen- ingavaldsins síns yfir „Tímanum“ að snert sé við því braskbákni Reykjavíkur- 203

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.