Réttur - 01.10.1979, Blaðsíða 13
Hann skildi að liann liafði verið gabbaður
af kanadískum auði og norskum hlaupastrákum.
,,Talúð aldrei við Júdasarmjólkinni“ — sagði pabbi bitur á banabeði.
III.
Þegar pabbi var dáinn fórum við börnin hvert í sína áttina.
Ég fór til Þrándheims og fékk vinnu hjá TMV —
Vélaverkstæði Þrándheims.
Þegar verkamennirnir kvörtuðu undan óþægindum af logsuðureyknum
kom fyrirtækið með flóaða mjólk.
Þá lamdi ég í borðið og fór suður til að finna
betri atvinnurekanda.
í Tanager fékk ég vinnu hjá NORSCO sem er hluti af
Aker-auðhringnum.
Einnig þar fengu verkamennirnir mjólk gegn
blýmenguðu lofti.
„Onarheim forstjóri segir það duga vel“
sagði verkstjórinn þegar við spurðum um ástœðuna.
„Þið gefið okkur gas og blý og flóaða mjólk en sitjið sjálfir
með konjaksglas og fleytið rjómann af vinnu okkar“
sögðum við og hótuðum verkfalli.
Mjólkurmútunum lauk eftir þami fund.
IV.
Yngsti bróðir minn, Geir,
fékk vinnu í Hamariðjunni í Stavanger.
Þegar Geir kvartaði undan of miklugasi í
vinnutíma, var honum eklii einusinm boðin mjólk.
,,Hann brosti aldrei til mín,“
var uppsagnarástæða verkfrœðingsms.
Þegar félagar Geirs fóru í verkfall honum til stuðnings,
var þeim líka sagt upþ.
215