Réttur


Réttur - 01.10.1979, Blaðsíða 39

Réttur - 01.10.1979, Blaðsíða 39
Liú Sjaó-Sí fyrrv. aðalritari flokksins og forseti Kína Liú Sjaó-Sí1) var einn af bestu leiðtog- um flokksins við hliðina á Chou-En-lai, Mao ogiiðrum, sem staðið höfðu í broddi fylkingar frá upphafi baráttuunar. Hann var fæddur 1898 í Hunan, skammt frá heimili Maos. Faðir hans var kennari. Ungur gerðist liann róttækur og var með í því að stofna æskulýðssamband sósíal- ista 1920, en það var fyrirrennari komm- únistaflokksins. Varð Liú einn af stofn- endum flokksins 1921 og næsta ár varð það verkefni hans að verða einn af for- ustumönnum kínverska Verkalýðssam- bandsins. Tvö ár var hann í skóla í Moskvu, en starfaði síðan náið með Chou-En-lai í Kanton og Shanghai í hin- um bylingarsinnuðu verklýðssamtökum uns þau voru bönnuð og sættu ægilegum ofsóknum eftir 1927. Starfaði hann þá í þeim á laun, uns hann varð ásamt Chou- En-lai og fleirum að halda til sovéthér- aðanna í Kína. Þar var liann kosinn í framkvæmdanefnd flokksins og varð leið- togi verklýðssambandsins, sem mest- megnis var skipað landbúnaðarverka- mönnum. Hann tók þátt í göngunni miklu og sífellt hlóðust á hann meiri ábyrgðarstörf. Hann varð formaður fram- kvæmdanefudar flokksins um tíma og eftir sigurinn 1949 varð hann varaforsæt- isráðherra. Heimsþekktur varð hann, er hann tók við forsæti Rauða alþjóðaverk- lýðssambandsins. Mao hafði skapað sér sína aðstöðu sem bændaleiðtogi, Liú hins vegar var fyrst og fremst verklýðsleiðtog- inn, viðurkenndur sem einhver hinn besti. Allir sendifulltrúar erlendra ríkja er höfðu með Líú að gera, dáðust að því hve' skýrhuga og skjóthuga hann var og gat skýrt hin vandasömustu viðfangsefni á einfaldan hátt. Líú var sá eini að leiðtogum kínverska kommúnistaflokksins, fyrir utan Mao, sem ritaði bækur um sósíalismann, er voru frumlegar og löngum viðurkenndar sem fyrirmyndarbækur. Má þar nefna bók hans „Internationalism and nation- alism“ (Alþjóðahyggja og þjóðernis- stefna), „On inner party struggle" (Um innanflokksdeilur, fyrirlestur, er hann hélt 1941 í flokksskólanum í Mið-Kína). Ein af bókum hans „Hvernig verða menn góðir kommúnistar“, var þýdd af Brynj- ólfi Bjarnasyni og gefin út af Heims- kringlu 1965. Liú átti ungur að ganga að eiga stúlku, er foreldrarnir ákváðu, — en liann neitaði því eins og Mao. Hann gekk að eiga konu, er var virkur félagi í flokknum, en hún var tekin af lífi af fasistum í borgarastyrj- öldinni. Eftir 1949 kvæntist hann Wang Kuang-mei, sem var kennari í eðlisfræði. IJfir hún mann sinn. (Konur í Kína lialda nöfnum sínum, þótt þær giftist, eins og hér á Islandi). Þegar ég var í Kína sumarið 1957 í boði kínverska Kommúnistaflokksins, sem formaður Sósíalistaflokksins, var Liú aðalritari kínverska flokksins og átti ég J)á tvo daga all ýtarleg viðtöl við hann, bæði um ýmislegt í sögu kínverska flokks- ins, sem mig langaði til að fá nánari skýr- ingar á, svo og um ýmis vandamál heims- hreyfingar sósíalismans, sem mjög mis- munandi skilgreining var Jiá á, einkum eftir Stalín-ræðu Krúsjeffs. Það voru mjög 239
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.