Réttur - 01.10.1979, Síða 7
eitt sinn var spáð, — livað verður þá um
alþýðuna og ísland?
Verkalýður íslands hefur háð 30 ára
hjaðningarvíg til þess að ná þeim kaup-
mætti launa, er hann hafði 1947, — allt
frá því amerískt drottnunarvald yfir ís-
landi fyrirskipaði launalækkun (dollar úr
6.32 í 16.50) og atvinnuleysi, til þess að
Iialda laununum niðri. íslenskur verka-
lýður hefur reynt að bæta sér upp kaup-
ránið, launakúgunina og óstjórn yfir-
valda með endalausum þrældómi, meiri
en nokkur verkalýðsstétt EvrójDu verður
að þola — og býr nú við hálfu lægri laun
en verkalýður Norðurlanda.
Ef ekki tekst með þeim pólitísku ráð-
um, sem hér var gerð grein fyrir, að ger-
breyta þessu ófremdarástandi — og hindra
um leið yfirstéttina í að beita vopni verð-
bólgunnar gegn verkalýðnum, — þá verð-
ur hér eilíf Sturlungaöld, sem getur end-
að sem sú gamla.
Það er því mikið í húfi að íslensk al-
þýða sýni nú þann manndóm, stjórnvisku
og þrótt, sem eitt getur bjargað íslandi
og alþýðunni sjálfri frá að sökkva niður
í raunverulega nýlenduþrælkun á ný -
þegar allir möguleikar til mannsæmandi
frjáls lífs hins vinnandi manns í krafti
óþrjótandi og ónotaðra auðlinda íslands
blasa við henni, ef hún aðeins ber gæfu
til að standa saman sem einn maður um
að nota þá í eigin þágu.
II.
Hægt og sígandi hrun
auðvaldsheimsins
bað er ennfremur nauðsynlegt l'yrir
okkur íslendinga að atlmga alla jrjóð-
málaþróun, ekki síst hina efnahagslegu
hlið: framleiðslu- og markaðsaukningu
með tilliti til þeirrar fjármálalegu þró-
unar, sem fram fer í heiminum.
Þegar Bandaríkjaauðvaldið fyrir ald-
arþriðjungi síðan sölsaði undir sig efna-
hagsyfirráðin á íslandi, ákvað gengi
krónunnar, fyrirskipaði atvinnnleysi, og
krafðist stöðugra launalækkana og hafði
hér sína efnahags-alræðismenn (einkum
1947-51), þá voru Bandaríkin í krafti
auðs síns efnahagslegt alræðisvald í auð-
valdsheiminum. Þá ákváðu þau að doll-
arinn væri gulls ígildi og allar aðrar auð-
valdsþjóðir skyldu líta á sem gull þann
pappírsdollar, sem auðvald Bandaríkj-
anna lét prenta í stórum stíl og notaði
m.a. til að kaupa upp góð fyrirtæki í Evr-
ópu, einkum Vestur-Þýskalandi.
Fyrir óstjórn hinna forríku Bandaríkja
á efnahagsmálum, „frjálsa verslun" er
leiddi til sífellds neikvæðs verslunarjafn-
aðar að viðbættum vitskertum vígbúnaði
og árásarstríðum (Víetnam), fór svo að
dollarinn tók að hrapa svo í áliti að 15.
ágúst 1971 neyddust Bandaríkin til Jress
að hætta að innleysa dollaraseðla með
gulli. „Bretton Woods“-kerfið, — alræði
dollarsins sem gullsígildi hrundi — og ])á
verða menn að muna að á Jressum „alræð-
isárum“ dollarsins voru gaillbyrðir Banda-
ríkjanna þrír fjórðu hlutar gullforða auð-
valdslandanna. Og iðnaður þeirra var þá
207