Réttur - 01.10.1979, Page 16
megi orð dauð og ómerk eiga rætur að
rekja til prentfrelsistilskipunarinnar frá
9. maí 1855, en þau voru ætluð til að
þrengja kosti prentfrelsisins, sem yfirvöld
á undanhaldi voru þá að veita lýðnum.
Fáfengileiki og tilgangsleysi þessara
ákvæða eru augljós í dag. Þegar Ólafur
Jóhannesson prófessor og fyrrverandi ráð-
herra kallaði í útvarpsviðtali þá, sem
stóðu að óhróðursskrifum um hann í Vísi
vegna frægra morðmála, sem nú eru til
meðferðar í Hæstarétti, VÍSISMAFÍU,
var að „sjálfsögðu" höfðað gegn honum
meiðyrðamál. Hann mætti að „sjálf-
sögðu“ ekki í réttinum og orðið VÍSIS-
MAFIA var dæmt dautt og ómerkt. Hann
sendi þá ritstjóra Vísis, Þorsteini Páls-
syni, opið bréf í Tímanum, þar sem hann
skrifaði meðal annars þetta:
„En þetta eru allt aukaatriði hér. Aðal-
atriðið er spurningin, hvort hægt sé að
dæma orð til dauða. Heilbrigð skynsemi
svarar því neitandi. Orð lifa eða deyja eftir
því sem efni standa til. Ekkert dómsorð
getur deytt þau. Þótt dómsorð segi eitthvert
orð dautt og ómerkt getur það eftir sem
áður lifað góðu lífi, flogið á milii manna í
talmáli og verið skrifað í bækur og blöð.
En dómsorð verður þá bara dauður bók-
stafur, engum til gagns eða ánægju."
Um hið síðara, að dæma menn í refs-
ingu fyrir að segja sannleikann eða
móðga yfirvöld með sönnum ádrepum,
mætti taka mörg dæmi. Þess ber þó að
geta, að þrátt íyrir ákvæði 95. gr. 108.
gr. og 237. gr. hegningarlaga hefur dóm-
venja í þessum efnum sveigst á síðari ár-
um í rétta átt.
Eitt slys vil ég þó nefna, enda hrópar
það í himininn. Þórbergur Þórðarson,
rithöfundur, mun hafa verið með fyrstu
mönnum, sem upplýstu íslendinga opin-
Þórbergur Þórðarson — dæmdur aí
Hæstarétti fyrir að segja sannleikann
um glæpi nasistanna.
berlega um útrýmingarbúðir nasista í
Dachau og glæpi nasistaflokksins í Þýska-
landi. Eftir góðum heimildum skril’aði
liann grein í Alþýðublaðið 6. janúar
1934 um Dachau (m.a. eftir frásögn Beim-
lers, sem þaðan, slapp naumlega), en það
varð til þess að aðalkonsúllinn þýski hér
varð uppvægur og linnti ekki látum fyrr
en forsætisráðherrann íslenski fyrirskip-
aði opinbera málssókn gegn Þórbergi fyr-
ir brot á þáverandi 88. gr. hegningarlag-
anna.
í undirrétti var Þórbergur að sjálf-
sögðu sýknaður. Hann sagði satt og liann
216