Réttur


Réttur - 01.10.1979, Side 17

Réttur - 01.10.1979, Side 17
Ingi R. Helgason hrl. var meðai verjenda þeirra, sem stefnt var í hinum illræmdu VL-málum, sem eru umfangsmestu meiðyrðamálaferli á fslandi til þessa. var frjáls að segja opinberlega skoðun sína á þýska nasistaflokknum. Þessum málalokum vildi aðalkonsúllinn þýski ekki una og íslenska ríkisstjórnin lét undan látum lians eða hótunum og áfrýjaði undirréttardóminum til Hæsta- réttar. Þá skeði slysið. Hitler var sýkn- aður, en Þórbergur sakfelldur fyrir að segja þann sannleika árið 1934, sem hörmungar heillar heimstyrjaldar þurfti til að opna augu manna fyrir. Mér þykir rétt að birta báða jæssa 46 ára gömlu dóma og forsendur þeiira, orðrétt, því að þeir varpa ljósi á eftir- minnilegan hátt á þá leið, sem fara verð- ur í breytingunni á íslenskri meiðyrða- löggjöf. Leturbreytingar og fyrirsagnir eru mínar. Dómsorð Hæstaréttar hljóðar svo: Því dæmist rétt vera: Að því leyti, sem hinn áfrýjaði dómur varðar ákærða, Finnboga Rút Valdimarsson, á hann að vera óraskaður. Ákærði, Þór- bergur Þórðarson, greiði 200 króna sekt í rikissjóð, og komi 15 daga einfalt fangelsi í stað sektarinnar, ef hún verður eigi greidd innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa. Svo greiði sami ákærði allan sakarkostn- að í héraði, þar með taldar 60 kr. til skipaðs verjanda síns þar, Stefáns Jóh. Stefánssonar hæstaréttarmálaflutnings- manns, og allan áfrýjunarkostnað sakar- innar, þar með talin málflutningslaun skip- aðs sækjanda og verjanda fyrir hæstarétti, hæstaréttarmálaflutningsmannanna, Jóns Ásbjörnssonar og Stefáns Jóhanns Stefáns- sonar, 120 krónur til hvors. Dóminum ber að fullnægja með aðför að lögum. Forsendur Hæstaréttar voru svohljóðandi: Mál þetta er höfðað samkvæmt fyrirmælum dómsmálaráðherra í bréfi 16. jan. þ. á. og eftir beiðni aðalkonsúlatsins þýzka hér, út af ummæl- um í grein eftir ákærða, Þórberg Þórðarson, í XV. árg Alþýðublaðsins, 64. tölubl., er út kom 6. jan. þ. á. Af ástæðum þeim, er i hinum áfrýjaða dómi seg- ir, ber að staðfesta hann að því leyti sem hann varðar ákærða, Finnboga Rút Valdimarsson. í áðurnefndri grein segir, að í fangabúðum Þýzkalands hafi, eftir að Hitler og flokksbræður hans tóku þar við völdum, hafizt „kvalir og píning- ar, er jafnvel sjálfan rannsóknarréttinn á Spáni mundi hrylla við, ef hann mætti renna augunum yfir þessi tæp 800 ár úr eilífðinni, sem eru milli Luciusar III. og sadistans á kanzlarastólnum þýzka (þ. e. Hitler)“. Síðan segir, að einhverjir hafi ef til vill tilhneigingu til að sefa gremju sína 217

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.