Réttur - 01.10.1979, Qupperneq 18
út af framannefndu athæfi með þeirri trú, að pín-
ingarnar í fangelsum Þjóðverja séu ekki fyrirskip-
aðar af ríkisstjórninni, en þetta telur höfundur
greinarinnar fjarri sanni, því að hið ægilegasta
við allar þessar píningar sé það, ,,að þær eru all-
ar undirbúnar og skipulagðar af þeim mönnum,
sem nú eiga að gæta laga og siðferðismála ríkis-
ins“.
Með þessum ummælum virðist höfundurinn full-
yrða það, að þýzka stjórnin hafi beinfínis skipu-
lagt og fyrirskipað kvalir þær og pyndingar, sem
hann lýsir í grein sinni.
Það verður að telja það meiðandi og móðgandi
fyrir erlenda menningarþjóS, aS segja þaS, að hún
hafi sadista (þ. e. mann, sem svalar kynferðisfýsn
sinni meS því að kvelja aSra menn og pynda) í
formannssæti stjórnar sinnar, og að hann og
stjórn hans hafi skipulagt og fyrirskipaS hinar
hryllilegustu kvalir og pyndingar á varnarlausum
mönnum, er jafnvel sjálfan rannsóknarréttinn á
Spáni, sem illræmdastur er fyrir pyndingar sinar
á varnarlausum mönnum, myndi hrylla við, ef hann
mætti nú eftir nær 800 ár renna augunum yfir
þær. Framannefnd orð og ummæli um hinn þýzka
kanzlara og stjórn Þýzkalands, sem ekki eru sönn-
uð réttmæt með þeim gögnum, er höfundur
þeirra kveðst hafa notað, varða við 4. mgr. 83.
almennra hegningarlaga, og þykir refsing hans
fyrir þau, með hliðsjón af því, að hann hefir talið
sig hafa heimildir fyrir þeim í erlendum blöðum
og ritum, hæfilega ákveðin 200 króna sekt í ríkis-
sjóð, og komi 15 daga einfalt fangelsi í stað
sektarinnar, ef hún verður eigi greidd innan 4
vikna frá birtingu dóms þessa.
Eftir þessum úrslitum verður að dæma ákærða,
Þórberg Þórðarson, til að greiða allan sakarkostn-
að í héraði, þar með taldar 60 kr. til verjanda
síns þar, og allan áfrýjunarkostnað sakarinnar,
þar með talin málflutningslaun skipaðs sækjanda
og verjanda fyrir hæstarétti, 120 kr. til hvors.
Dómur aukaréttar Reykjavíkur uppkveð-
inn 9. apríl 1934, var svohljóðandi:
„Ákærðir Þórbergur Þórðarson og Finn-
bogi Rútur Valdimarsson skulu sýknir af
ákæru réttvísinnar í máli þessu.
Málskostnaður greiðist af almannafé, þar
með talin málsvarnarlaun skipaðs tals-
manns ákærðu, Stefáns Jóh. Stefánssonar,
sem þykja hæfilega ákveðin kr. 60,00.“
Hans Beimler. — Fæddur 1895
í Miinchen. Snemma kommún-
isti. Ríkisþingmaður 1932. Fang-
elsaður 11. apríl 1933, pyntaður,
settur í dauðabúðirnar í Dachau
25. apríl 1933, en tókst að flýja
nóttina 8.—9. maí. Ritaði bækl-
inginn „í morðingjabúðum Dac-
hau“, sem kynnti heiminum ógn-
ir Hitlerstjórnarinnar. Hélt áfram
baráttunni, fór til Spánar, er fas-
istauppreisnin hófst. Féli við
Madrid 1. des. 1936.
Forsendur héraðsdóms voru
svohljóðandi:
„Mál þetta er höfðað af réttvísinnar hálfu eftir
kröfu þýzka aðalkonsúlatsins í umboði þýzku rík-
isstjórnarinnar og samkvæmt skipun dómsmála-
ráðuneytisins gegn þeim Þórbergi Þórðarsyni, rit-
höfundi, til heimilis Hallveigarstíg 9 og Finn-
boga Rút Valdimarssyni ritstjóra til heimilis Skóla-
vörðustíg 23, fyrir brot gegn ákvæðum 9. kap.
hinna almennu hegningarlaga frá 25. júní 1869.
218