Réttur - 01.10.1979, Side 21
JOE HILL
100 ÁRA
Hann hét Joel Högglund og var sonur
óþekkts, fátæks járnbrautarstarfsmanns
og konu hans. Hann var fæddur 7. októ-
ber 1879, einhvers staðar í Svíþjóð. Ung-
ur að aidri flutti hann til Bandaríkjanna
og tók sér þá nafnið JOE HILL, einkum
er hann fór að búa til söngva og stundum
lög við þá, en ósjaldan notaði hann líka
lög Hjálpræðishersins og smíðaði við
þau þveröfugan texta, svo sem í söng
þeim, sem hér var oft sunginn á kreppu-
tímunum: „Hverja helgi um hádegis-
stund“ o. s. frv.1
Joe Hill gerðist 1910 félagi í hinum
róttæku verkalýðssamtökum Bandaríkj-
anna IWW („Industrial Workers of the
World“, iðnaðarverkamenn heims) og
urðu baráttusöngvar hans eitt af bitrustu
vopnum þeirra samtaka — og Joe Hill að
sama skapi hataður fyrir að smíða slík
vopn. Strax 1911 — í verkfalli í Kali-
forníu — urðu vísur hans og lög fræg —•
og brátt landsþekkt frá einni strönd til
annarrar, frá Fraser-fljóti í Vestur-
Kanada allt austur til Nýja-Englands, og
brátt bárust ljóð og lög út fyrir land-
steinana, sungin af milljónum verka-
manna, sem börðust fyrir brauðinu og
lífinu.
Yfirstéttin hataði Joe Hill, sem vænta
mátti og notaði tækifærið 1915 til að
fremja á honum réttarmorð, — eitt af
mörgum í blóðidrifinni sögu Bandaríkj-
anna.
Það var í Utah-ríki, sem þeim tókst að
klekkja á honum, dómsmorðingjunum,
dærna hann fyrir manndráp, sem hann
var saklaus af, — en hann var IWW-fé-
lagi og það var nóg.
Þó var víðfeðm barátta háð til að frelsa
líf hans. Eigi aðeins verkalýðssamtökin
221