Réttur - 01.10.1979, Síða 22
voru þar virk, frá Svíþjóð bárust og mót-
mæli og m.a.s. Wilson forseti bað dómar-
ann i Utah að atliuga mál þessa manns
betur. Það var Elisabet Gurley Flinn,
sem fór ásamt öðrum manni á fund Wil-
sons, til að leita hjálpar frá hans hendi
— og orkaði hvatning hans þó ekki á fyrir-
fram ákveðna dómsmorðingja yfirstéttar-
innar í Utah.
Elisabet heimsótti Joe Hill í fangels-
inu, 25 ára gömul. Joe var ekki bjartsýnn
á að baráttan bæri ávöxt: „Ég óttast ekki
dauðann, en mér þætti þó vænt um að fá
að berjast lengur,“ sagði hann við hana.
— Hann hafði ort um hana söng: „Upp-
reisnarstúlkan" („The Rebel Girl“) og
bar hún lengi það nafn og sjálfsævisaga
hennar heitir svo. — Hún kvaddi hann
kvíðafull, — en hann sagði í glensi um
gamlan skeggjaðan mann, er var að slá
grasið í fangelsisgarðinum: „Sá er hepp-
inn, Gurley. Hann er mormóni og á tvær
konur. En ég á ekki einu sinni eina.“ —
Elisabet Gurley segir í ævisögu sinni:
„Ég sé hann enn fyrir mér í gegnum riml-
ana og „hann horfði brosandi á mig“ —
eins og segir í kvæði því, sem um hann
var ort.“
Joe Hill var tekinn af lífi 19. nóvember
1915. Hann kaus að vera skotinn, ekki
hengdur. Hann neitaði að láta binda
fyrir augun og gaf sjálfur fyrirskipunina
um að hleypa af.
Samkvæmt fyrirmælum Joe Hill var
lík hans flutt til Chicago. Þar fór lík-
brennslan fram. Tugþúsundir tóku þátt
í líkfylgdinni undir rauðum fánum,
syngjandi söngva hans. Ári síðar var, sam-
kvæmt fyrirmælum hans einnig, ösku
hans dreift til allra heimsálfa og allra
sambandsríkja í Bandaríkjunum, nema
Utah.
Elisabeth Flynn
Joe Hill er í dag hinn ódauðlegi píslar-
vottur, ímynd svo margra annarra, sem
látið hafa lífið í baráttunni fyrir sósíal-
ismanum og frelsi verkalýðsins.
Ljóðið, sem Alfred Hayes og Earl
Robinson ortu um hann og Paul Robe-
son söng af svo mikilli list, hefur ekki
hvað síst borið frægð hans út um heim-
inn — og það ljóð þýddi Einar Bragi með
ágætum.
Skýringar:
1 Sjá |>að í greininni „Dómsmorð amerískrar
aldar i „Rétti" 1971, bls. 197.
222