Réttur - 01.10.1979, Qupperneq 24
Kathe Kollwitz: Eymd.
mál þeirra. Slíkt er óframkvæmanlegt og
hefur „Choisir" því sérstakan hóp lög-
fræðinga sem taka að sér slík mál. Hreyf-
ingin berst fyrir réttindum kvenna og
hefur meðal annars gert tillögur um
breytingar á lögum um fóstureyðingar og
fleira.
Sérhver á rétt til þess að segja nei og að
virðing sé borin fyrir neitun hans. Gis-
ele vildi einhvern tímann fá að verja
vændiskonu sem hefði verið nauðgað.
Því jafnvel sá sem lifir af að selja líkama
sinn á rétt til þess að ákveða hvar og með
hverjum.
Fyrir skömmu vann Gisele að vöm 13
ára stúlku sem hafði verið nauðgað af
þremur lögregluþjónum. Eitt af því sem
notað var gegn stúlkunni, var að hún not-
aði andlitsfarða. Sem sagt séu konur
frjálslegar, sjálfstæðar og ekki lengur
jómfrúr, er það þeim sjálfum að kenna
ef þeim er nauðgað.
Gisele varð m.a. fræg fyrir að verja
hina 22 ára frelsishetju, Djamila Bou-
pacha, sem liafði verið pyntuð af frönsku
öryggisþjónustunni. 111 í(ði Gisele í engu
Frökkum og hræsnisfullri löggjöf þeirra.
Með þetta í huga er það skringilegt að
hún er ein af tíu konum Frakklands sem
karlmönnum geðjast best að samkvæmt
skoðanakönnun tímaritsins ,Elle‘. En Gis-
ele er mjög fögur kona og aðlaðandi
persónuleiki.
í dag er Gisele Halimi gift og á 3 syni.
Hún þekkir kjör kvenna af eigin raun.
Hún hefur mætt í yfirrétti með unga-
barn í fanginu og veika von um að kon-
an í fatageymslunni gætti þess meðan hún
flutti mál sitt. Fyrstu varnarræðumar
samdi hún að nóttu til, sinnt börnunum
að morgni og hugsaði til andstæðingsins
sem þá væri að raka sig vandlega og fengi
morgunmatinn færðan eftir góðan næt-
ursvefn.
„Við þurfum uppgjör við uppekli
stúlkna og þau yfirvöld sem okkur er
kennt að treysta á. Það sem gildir er rétt-
ur konunnar til menntunar, starfsferils
og hvenær og hvort þær vilja eiga börn.
Mikil ábyrgð hvílir á konum á Norður-
löndum því að þær stancla utan hinnar
kaþólsku menningar. Páfinn fordæmir
getnaðarvarnir og fóstureyðingar en
gleymir að minnast á vannærð börn og
framtíðarmöguleika barna. Slíkur mað-
ur er hættulegur, slík hræsni geigvænleg.
Baráttan verður löng og ströng." Þannig
mælir Gisele Halimi.
224