Réttur


Réttur - 01.10.1979, Page 27

Réttur - 01.10.1979, Page 27
„Hernaðar- og stóriðju-klíka“ Bandaríkjanna hræðist kreppuna meir en allt annað. Þess vegna er vopna- glamrið og margföldun vígbúnaðar sett af stað. sem hann gerir nú? Þessi guðs geldingur virðist hvorki hafa kjark né vit Eisenhow- ers forseta til að vara þjóð sína við „hern- aðar- og stóriðju-klíku" Bandaríkjanna, sem er að sölsa allt vald undir sig í því landi. Þessi valdaklíka hóf undir eins að stríðslokum undirbúning að árásarstríði á l'ornan bandamann sinn, Sovétríkin, flakandi í sárum. Þessi erkiafturhalds- sama auðmannaklíka ætlaði sér þá að feta í fótspor Hitlers — og rnáske hefna hans. Hún hóf sem hann undirbúning að stofn- un eins konar „andkommúnistabanda- lags“ í veröldinni, auðvitað hræsnandi með lýðræðið á vörunum. Hámarki sínu náði þessi fjandskapur við sósíalisma og þjóðfrelsi smáþjóða, þegar Bandaríkin réðust að tilefnislausu á Víetnam og létu í sjö ár dynja yfir eina 227

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.