Réttur


Réttur - 01.10.1979, Qupperneq 29

Réttur - 01.10.1979, Qupperneq 29
alla Afríku og Asíu, sagan af morðum þeirra, ránum og níðingsskap er einhver myrkasti kafii mannkynssögunnar. Þær hafa orðið að hörfa allmikið síðustu ára- tugina, hvað drottnunina snertir, — (við íslendingar þekkjum líka baráttuna fyrir brottrekstri þeirra) — en arðránsklærnar eru enn víða eftir, blóðugar og beittar. Við hugsunina um allt ástand þeirra nú, — ekki síst eymdarvæl þeirra yfirstétta yfir því að geta ekki drottnað á sama hátt sem fyrr, — kemur manni ósjálfrátt í hug lýsing Þorsteins Erlingssonar í „Ljóninu gamla“: „Ber lúinn ekki líkan keim og löstum fylgir stundum? Er slenið ólíkt eymdum þeim, sem ofát bakar hundum? Er eyrnasuðan ekki hljóð frá aldalaungum pínum, og sjónin eins og saklaust blóð sje sest að augum þínum?“ * * Það er jress vegna síst eftirsóknarverð- ur íelagsskapur fyrir oss íslendinga að lenda með þessum yfirstéttarlýð, er hann reynir eltir fyrirmynd verstu múgmorð- ingja heims — eftir að Hitler leið — að leika hinn saklausa, einlæga verndara lriðar og sjálfstæðis þjóða út af atburðun- um í Afghanistan. „Réttur" mun íyrir sitt leyti vissulega ræða þá atburði og reyna að kryfja til mergjar í næsta hefti, þegar eitthvað meir verður vitað um að- dragandamr og atburðina sjálfa en það, sem amerískar áróðursfréttir hernra. Og þó koma m.a.s. amerísku áróðurs- fréttirnar okkur ekki ókunnuglega fyrir sjónir, ef vér hyggjum að okkar eigin sögu og reynslu síðustu fjögurra áratuga. Við höfum reynsluna af aðferðum bandarískra og breskra stjórnvalda í slík- um efnum sem sendingu hers iun í ann- að land: I júní 1941 voru íslenskri ríkisstjóm settir úrslitakostir að kalla bandarískan her inn í hertekið land sitt. Það hernám var síðan kallað „samningur“ og ólöglegt þing látið samjDykkja hann í júlí 1941, er hernámið hafði farið fram. í þeim ,,samning“ var því lofað að Bandaríkjaher færi héðan að stríðslokum. Bandaríkjastjóm sveik þann „samning" 1945 — heimtaði síðan þrjá hluta af ís- landi undir amerísk yfirráð í 99 ár til að reisa hér voldugar herstöðvar — og Jiegar hún fékk Jiað ekki, þá sveik hún brottfar- arsamninginn og kúgaði meirihluta Al- þingis til að samþykkja Keflavíkursamn- inginn, en hótaði ella að halda íslandi hernumdu. Síðan lét hún erindreka sína á íslandi blekkja meirihluta Alþingis til að láta ísland ganga í hernaðarbandalag sitt — með því skilyrði að aldrei yrði her á Is- landi á lriðartímum. Síðan sveik Bandaríkjastjórn Jietta lof- orð, — Jaetta skilyrði fyrir Jiátttöku ís- lands í Nato — og lét Bandaríkjaher gera innrás í landið 7. maí 1951, hertaka það og hefur haldið Jjví síðan. Hún hafði áð- ur látið ríkisstjórn á Islandi biðja unt innrásina og hernámið. Til Jjess hafði sú stjórn engan stjórnarfarslegan rétt — og máske hel'ur henni verið þröngvað til Jjess líkt og 1941? Það er Jjví best fyrir íslenska hernáms- flokka að kasta ekki grjóti úr glerhúsi og fara sér hægt með æsing eftir amerískum fyrirskipunum út af Afghanistan. 4c -K 229

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.